Gott að eiga hreinskipta umræðu um skólamálin

Fréttir|16. nóvember 2026
Austfirðingar tóku vel á móti fulltrúum Kennarasambandsins.

Forystufólk Kennarasambandsins fundaði með sveitarstjórnar- og skólafólki á Austurlandi fyrr í vikunni. Fundirnir voru vel heppnaðir að sögn formanns KÍ.

Fulltrúar KÍ fóru í heimsókn til tveggja sveitarfélaga á Austurlandi í kjölfar boðs þeirra um að fá fund og ræða um sýn KÍ í skólamálum, Blásum byr í seglin.

Fundirnir fóru fram í Múlaþingi og í Fjarðabyggð fyrr í vikunni – og auk fulltrúa KÍ mætti á þá sveitarstjórnarfólk úr héraði og fulltrúar fræðsluyfirvalda sveitarfélaganna. Einnig voru fundir í framhaldsskólum sveitarfélaganna tveggja bæði með kennurum og skólastjórnendum.

Magnús Þór Jónsson formaður KÍ lýsti ánægju fulltrúa KÍ með fundinn: „Það er okkur afskaplega mikilvægt að bæði eiga hreinskipta umræðu um sýn KÍ og ósk um samfélagslegt samtal en líka rýni í skólastarf hvers sveitarfélags og þau verkefni sem þar felast. Þarna kom sannarlega í ljós hversu öflugt skólastarf er að finna í þessum sveitarfélögum, metnaður til að gera enn betur og alger samhljómur um mikilvægi framtíðarsamtals á landsvísu um skólamál. Það var líka mjög lærdómsríkt að fræðast um stöðuna í framhaldsskólunum á Austurlandi sem auk þess að vera öflugar skólastofnanir eru líka lífæðar ungs fólks í samfélögunum.“

Frekari fundir fulltrúa KÍ með ólíkum hagsmunaaðilum eru fyrirhugaðir á næstu vikum og mánuðum.

Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, Árni Ólason, skólameistari ME og Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.