Gott að gista í Gagganum

Orlofssjóður á íbúð á besta stað á Siglufirði. Siglufjörður er nyrsti kaupstaður landsins og þar er nóg um að vera.
Orlofssjóður á glæsilega íbúð á Siglufirði, að Hlíðarvegi 20. Íbúðin er í sögufrægu húsi sem var teiknað hjá Húsameistara ríkisins, undir umsjón Guðjóns Samúelssonar. Húsið hýsti gagnfræðaskóla bæjarins og var tekið í notkun 6. október 1957.
Enn í dag gengur húsið undir nafninu Gagginn. Skólahúsið var mikið framfaraspor fyrir siglfirska unglinga en áratugina tvo á undan fór kennsla fram á loftinu í Siglufjarðarkirkju.
Fimmtán íbúðir eru í húsinu. Íbúð OKÍ er þriggja herbergja, 97 fermetrar, og er á jarðhæð hússins. Svefnpláss eru fyrir sex manns, gott eldhús og borðstofa fyrir 10 manns. Gott útsýni er yfir bæinn, söfn, verslanir og veitingastaðir eru í göngufæri.
Saga og skemmtun
Siglufjörður er nyrsti kaupstaður landsins, staðsettur við samnefndan fjörð nyrst á Tröllaskaga. Íbúar eru um 1.300. Veitingastaðirnir eru um það bil tíu talsins og hægt að velja alls konar mat.
Saga Siglufjarðar er merkileg, gengi sjávarútvegs hefur risið og hnigið á víxl og staðurinn ýmist verið víðfrægur eða gleymdur.
Síldin kom og síldin fór. Hægt er að kynna sér söguna á Síldarminjasafninu, sem er eitt af áhugaverðari söfnum landsins. Þá er Þjóðlagasetur séra Bjarna Þorsteinssonar einstakt en þar eru íslensk þjóðlög kynnt á aðgengilegan og skemmtilegan hátt.
Tröllaskagi er góður til útivistar, margar gönguleiðir og hægt er að spila golf á níu holu velli í bænum. Nú svo er auðvelt að heimsækja bæi í nágrenninu, svo sem Ólafsfjörð, Hofsós og Dalvík.