Grænland er ekki til sölu!

Leiðtogar kennarasambanda í níu löndum eru staddir í Nuuk á Grænlandi til þess að sýna þarlendri þjóð samstöðu gegn hótunum um landið þeirra verði keypt. Leiðtogarnir ræddu jafnframt menntamálin; einkum með tilliti til virðingar fyrir tungumálum, menningu og þekkingu frumbyggja.
Framtíð Grænlands á að vera í höndum fólksins sem þar býr. Nú steðjar hætta að landinu og við komum hér saman til að sýna samstöðu og stuðning. Við munum aldrei samþykkja að landið verði tekið af okkur,“ sagði Elna Heilman Thomsen, formaður IMAK, þegar hún ávarpaði forystufólk kennarasambanda Norðurlandanna, Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó á tveggja daga viðburði, sem bar yfirskriftina Ekkert um okkur, án okkar, og fór fram í Nuuk á Grænlandi í dag og gær.
Viðburðurinn hefur vakið verðskuldaða athygli, bæði á Grænlandi og víðar. Forystusveit kennara gekk fylktu liði að þinghúsinu í Nuuk í morgun og mætti þar ráðherrum og þingmönnum landsins. Athygli vakti að gert var hlé á þingfundi vegna viðburðarins og komu þingmenn og ráðherrar út á torgið fyrir framan þinghúsið. Grænland er ekki til sölu hljómaði í göngunni og samhugur var mikill meðal göngufólks og almennings sem fylgdist með.
Samstarfið mikilvægt, segir Magnús Þór
„Ég tel mikilvægt fyrir okkur hjá KÍ að vera hérna á þessum punkti. Við stóðum að stofnun UTNORD-samstarfsins með Færeyingum og Grænlendingum fyrir tveimur árum. Þetta er hagsmunabandalag þjóðanna þriggja í útnorðri. Við vorum þess fullviss að með því að standa saman þá gætum við lyft röddum okkar hærra. Þessi viðburður er beintengdur við þetta samstarf," segir Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og vísar þarna í formlegt samstarf Íslands, Grænlands og Færeyja í málefnum kennara og menntunar almennt.
Á ráðstefnunni miðluðu leiðtogar kennarasambandanna reynslu sinni og ræddu áskoranir sem menntakerfin þurfa að kljást við.
Jelmer Evers, framkvæmdastjóri ETUCE, sagði að menntastefnu verði að móta í samvinnu við kennara og samfélög. Hann lagði áherslu á mikilvægi alþjóðlegrar samstöðu á tímum þegar ógnir steðja víða að, eins og Grænlendingar þekkja af eigin raun eftir að Bandaríkjaforseti hóf að ásælast þessa stærstu eyju heims.
Sjálfsmynd, tungumál og menning
Þátttakendur á ráðstefnunni voru sammála um að alltaf verði að leggja áherslu á að menntakerfi endurspegli í öllum tilvikum tungumál, menningu og þekkingu frumbyggja. Gæðamenntun byggi á menningarlegri skírskotun og verja þurfi menntun sem grundvallarréttindi sem séu byggð á lýðræði, inngildingu og virðingu.
David Edwards, aðalritari Education International, kvað einnig fast að orði og sagði kennara um allan heim standa með grænlenska kennarasambandinu, IMAK, í viðleitni sambandsins til að verja opinbera menntun gegn utanaðkomandi þrýstingi og tryggja að grænlensk börn og ungmenni fái kennslu í umhverfi þar sem sjálfsmynd þeirra og réttindi eru tryggð. „Land, menning og íbúar Grænlands eru ekki til sölu,“ sagði David Edwards.
Magnús Þór sagði ráðstefnuna og samstöðufundinn hafa heppnast eins vel og vonir stóðu til. Hann sagði alþjóðlega samstöðu kennarasambanda mikilvæga til þess að vernda gildi gæðamenntunar, inngildingar og virðingar fyrir menningu þjóða – á Grænlandi og um veröld alla.
Samtakamáttur hinna smáu
Elna Heilman Thomesen, formaður IMAK, sagðist þakklát fyrir þá samstöðu og vinarhug sem ráðstefnugestir sýndu grænlensku þjóðinni. „Það er ómetanlegt að deila hugmyndum og styrkja hvert annað," sagði Elna.
„Velferð barnanna okkar og framtíð heimsins veltur á því að þau fái góða menntun. Nú er tími til kominn til þess að ræða aðstæður til skólahalds á Grænlandi og um það hvernig við getum gert nauðsynlegar umbætur,“ sagði Elna og bætti við að UTNORD-samstarfið hefði heldur betur gefið byr í seglin. Lítil samfélög eins og Grænland, Færeyjar og Ísland nýttu nú samtakamáttinn til að styrkja hvert annað í að vinna að betra menntakerfi, sagði Elna um leið og hún þakkaði kollegum sínum Magnúsi Þór og Jacobi Eli Olsen, frá Færeyjum, fyrir þeirra þátt í skipulagningu viðburðarins.
Stuðningsyfirlýsingar við þinghúsið
Myndbandið sýnir yfirlýsingar forystufólks kennarasambanda Norðurlandanna, Bandaríkjanna, Mexkíkó og Kanada fyrir framan þinghúsið í Nuuk.