Greiðslumat og framhaldsskólakennaralaun

Fréttir|6. mars 2014

„Ég er framhaldsskólakennari. Ég hef lokið háskólanámi frá þremur mismunandi skólum í jafn mörgum löndum. Nú þegar allt bendir til þess að ég sé á leiðinni í verkfall í fyrsta skipti, er ansi líklegt að það verði líka í síðasta skipti. Ég fór nefnilega í greiðslumat,“ svo hefst grein Agnesar Óskar Valdimarsdóttur sem birtist í Fréttablaðinu og á Vísi.

Agnes Ósk segir í greininni að hún hafi farið í bankann á dögunum til að kanna hver greiðslugeta hennar væri ákveddi hún að kaupa 80 fermetra íbúð.

„Mánaðargreiðslur af LÍN-lánum er um 23 þúsund krónur á mánuði. Afborganir af bílaláni sem ég er með er um 25 þúsund á mánuði. Á framhaldsskólakennaralaunum er greiðslumatið mitt 0–20 þúsund krónur á mánuði. Ég hló. Ég veit ég er á lágum launum, en aldrei datt mér í hug að ég gæti í besta falli keypt gluggalaust geymsluhúsnæði,“ skrifar Agnes Ósk.

Grein Agnesar Óskar má lesa HÉR.