Greining tækifæra í Sunnufold

Fréttir|3. apríl 2014

Ásdís Olga Sigurðardóttir og María Vilborg Hauksdóttir, sem báðar eru í hlutastarfi sem aðstoðarleikskólastjórar á leikskólanum Sunnufold, verða með hádegisrabb undir yfirskriftinni Greining tækifæra í Sunnufold. Þær fjalla um hvernig ferlið við sameiningu Foldaborgar, Foldakots og Funaborgar í Grafarvogi gekk fyrir sig. 

Hádegisrabbið fer fram í H201 á Menntavísindasviði HÍ við Stakkahlíð og stendur frá 12.10 til 13.