Grunnskólakennarar krefjast launaleiðréttingar
Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fjölmennum fundi félagsmanna FG í gærkvöldi.
"Fundur félagsmanna í Félagi grunnskólakennnara, haldinn 10. apríl 2014 í Gamla bíó í Reykjavík, krefst þess að laun félagsmanna verði leiðrétt hið fyrsta. Fyrir liggur að kjör stéttarinnar eru mun lakari en annarra sem vinna sambærileg störf og eru með sambærilega menntun. Sveitarfélögin þurfa að fara í eðlilega og nauðsynlega kjaraleiðréttingu. Verði ekkert að gert stefnir í óefni í starfi grunnskólanna þar sem engin nýliðun á sér stað og eldri og reyndari kennarar hverfa frá starfi.
Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við samninganefnd FG í viðræðum þeirra við Launanefnd sveitarfélaganna".
Samskonar ályktun var einnig samþykkt á fundi rúmlega 100 trúnaðarmanna FG í Framheimilinu um miðjan dag í gær.