Guðjón Hreinn Hauksson endurkjörinn formaður FF
Fréttir|30. janúar 2026

Úrslit liggja fyrir í kosningum FF.
Guðjón
Guðjón Hreinn Hauksson verður formaður Félags framhaldsskólakennara á næsta kjörtímabili, 2026 til 2030. Úrslit í formanns- og stjórnarkjöri FF voru kynnt rétt í þessu.
Tveir voru í framboði til formanns FF, Guðjón Hreinn Hauksson, núverandi formaður FF, og Simon Cramer Larsen, formaður skólamálanefndar FF og dönskukennari við FÁ.
Þá var kosið um fjögur sæti í stjórn, og þrjú í varastjórn FF, til næstu fjögurra ára. Ellefu félagar í FF gáfu kost á sér til stjórnarsetu.
Niðurstaða í formannskjöri FF
- Guðjón Hreinn Hauksson hlaut 669 atkvæði, eða 60,54%.
- Simon Cramer Larsen hlaut 385 atkvæði eða 34,84%
- Auðir seðlar voru 51 eða 4,62%
- Á kjörskrá voru 1.795
- Alls greiddu 1.105 atkvæði eða 61,56%.
Niðurstaða í stjórnarkjöri FF
Aðalstjórn
- sæti Sólrún Geirsdóttir, 507 atkvæði
- sæti Guðmundur Björgvin Gylfason, 417 atkvæði
- sæti Björn Gísli Erlingsson, 399 atkvæði
- sæti Simon Cramer Larsen, 397 atkvæði
Varastjórn
- varafulltrúi Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, 349 atkvæði
- varafulltrúi Sandra Hlín Guðmundsdóttir, 339 atkvæði
- varafulltrúi Anna Jóna Guðmundsdóttir, 303 atkvæði
- Auðir seðlar voru 58
- Á kjörskrá voru 1.795
- Atkvæði greiddu 980 eða 54,60%
Kosningarnar hófust klukkan 10 að morgni síðasta mánudag, 26. janúar, og lauk klukkan 10 í morgun, fimmtudaginn 29. janúar. Atkvæðagreiðslan var rafræn og fór fram á Mínum síðum á vef KÍ.