Guðmundur Andri um verkfall og verðmætamat
„Vart eru þarfari stéttir hér í þjóðfélaginu en kennarar og með sterkari inngróna ábyrgðarkennd gagnvart starfi sínu og þeim verðmætum sem þeim er trúað fyrir. Það þekkja allir sem átt hafa börn í skóla – eða verið börn í skóla – sem sagt: allir.“ Á þessum orðum hefst grein Guðmundar Andra Thorssonar rithöfundar sem birt er í Fréttablaðinu og á Vísi í dag.
Guðmundur Andri segir erfitt að sjá að yfirvöld menntamála átti sig fyllilega á alvöru kjaradeilunnar. Menntamálaráðherra virðist ekki hafa áhuga á að leysa málið heldur hyggist hana nota það til að ná fram tilteknum kerfisbreytingum á íslensku menntakerfi.
„Hann virðist standa í þeirri meiningu að allir framhaldsskólar séu eins og MR og bjóði bara upp á fjögurra ára nám – kannski að einfaldast væri bara að breyta MR, en svona almennar hugmyndir viku fyrir verkfall eru vitanlega fyrst og fremst til þess ætlaðar að drepa launakröfum á dreif.
Óskandi væri að yfirvöld hefðu sama metnað við að búa kennurum góð kjör og þau sýna jafnan þegar reistar eru skólabyggingar, þar sem allir virðast jafnan þrútnir af metnaði,“ skrifar Guðmundur Andri.