Guðríður tekin við embætti formanns Félags framhaldsskólakennara
Fréttir|21. mars 2014
Guðríður Arnardóttir tók nú síðdegis formlega við formennsku í Félagi framhaldsskólakennara af Aðalheiði Steingrímsdóttur. Auk Guðríðar skipa nýja stjórn þau Reynir Þór Eggertsson, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, Kjartan Þór Ragnarsson og Guðný Lára Petersen. Í varastjórn eru Elías Þorsteinsson, Sigríður Ragna Birgisdóttir og Helga Helena Sturlaugsdóttir.
Formaður og stjórnarmenn voru kosnir í allsherjaratkvæðagreiðslu í janúar síðastliðnum.