Hægt að bóka maí frá og með morgundeginum

Fréttir|31. janúar 2014

Opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa og orlofsíbúða KÍ, vegna maímánaðar, á morgun, 1. febrúar 2014.

Félagsmenn athugi sérstaklega að úthlutunartímabilið að þessu sinni er styttra en vanalega þar sem sumartímabilið hefst síðdegis 28. maí næstkomandi. Af þessum sökum munu bókanir í maí einungis gilda fyrir dagana 1. til 27. maí (brottför miðast við hádegi 28. maí).

Opnun fyrir bókanir á sumartímabili verður auglýst í Orlofsblaðinu og á Orlofsvef KÍ.