Hægt að hafa mikil áhrif á framfarir nemenda

Fréttir|22. janúar 2026

Nanna Kristín Christiansen, stjórnandi verkefnisins „Leiðsagnarnám“, segir samvinnu og gagnkvæman stuðning vera lykilatriði í námsmenningu sem byggir á leiðsagnarnámi. Fjórir skólar í Reykjavík tóku þátt í verkefninu Þekkingarskólar í leiðsagnarnámi á liðnu skólaári.

Í stuttu máli má segja að leiðsagnarnám snúist um að hjálpa nemandanum til að komast frá þeim stað sem hann er á í náminu og að markmiði sínu. Það er gert með leiðsögninni,“ segir Nanna Kristín Christiansen, fyrrverandi verkefnastjóri hjá fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur.

„Það er búið að gera ótrúlega mikið af rannsóknum sem tengjast leiðsagnarnámi og sérstaklega endurgjöf því það er þessi endurgjöf sem við köllum leiðsögn. Það hefur sýnt sig að með réttri endurgjöf er hægt að hafa mikil áhrif á framfarir nemenda en þegar rangt er að henni staðið getur hún beinlínis hindrað námsárangurinn.

Það er búið að sýna fram á að það er ekki nóg að leiðbeina nemandanum frá A til B heldur þarf kennarinn að búa yfir ákveðnu hugarfari til að þetta virki; hann þarf í fyrsta lagi að hafa miklar væntingar til nemenda sinna, hann þarf að hafa miklar væntingar til sjálfs sín og hann þarf að líta á árangur og framfarir nemendanna sem skilaboð um hvernig hann sjálfur er að standa sig ekki síður en nemendur. Ef eitthvað gengur ekki nógu vel þarf hann að vera tilbúinn til að setjast niður og ræða við kollega sína um hvað hann geti gert – ekki hvernig hann geti breytt nemendum sínum heldur hvernig hann geti breytt sjálfum sér til að nemendurnir fái það sem þeim ber.

Það þarf að vinna mjög vel með bekkjarbraginn, það á að vera leyfilegt að gera mistök og það á að byggja upp eins konar þekkingarský í bekknum þar sem þekking, reynsla og hæfni allra nemenda safnast saman og verður eign allra þannig að allir læri af öllum. Samkeppni er algerlega bönnuð.

Samvinna og gagnkvæmur stuðningur eru lykilatriði. Það er mikil áhersla lögð á samræðuna vegna þess að menntun er fólgin í hugsun og til að hjálpa nemendunum að hugsa er best að láta þá tala vegna þess að þá forma þeir hugsanir sínar og skilja oft betur – bæði þegar þeir tala sjálfir og hlusta á aðra.“

Megintilgangur leiðsagnarnáms er með öðrum orðum að auka sjálfstæði nemenda og gera þá eins ábyrga fyrir sínu eigin námi og kostur er.

Nanna segir að rannsóknir Carol Dweck hafi sýnt að börnum með vaxandi hugarfar vegni miklu betur í námi en þeim sem eru með fastmótað hugarfar. Barn með fastmótað hugarfar hafi til dæmis þá hugmynd að það sé gott í stærðfræði en ekki tungumálum og leggi sig þess vegna ekki fram í tungumálanámi, í stað þess að hugsa að það verði betra í tungumálunum ef það leggi sig fram.

„Börnin verða að vera meðvituð um að það eru taugabrautir í heilanum sem örvast og verða til þegar þau leggja á sig í náminu og að það þarf ýmislegt að vera í námsmenningunni til að þetta virki. Það þarf þess vegna að leggja mikla áherslu á að búa til rétta námsmenningu.“

Breyting á viðhorfum

Shirley Clarke, sem er enskur menntunarfræðingur, hefur undanfarna áratugi stutt við og innleitt leiðsagnarnám í enskum skólum auk þess sem hún hefur skrifað bækur, haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra sem og veitt ráðgjöf í heimalandi sínu og víðar, til að mynda fyrir skóla- og frístundasvið Reykjavíkur.

Margir skólar í Bretlandi og víðar byggja á aðferðum Clarke en megináherslur hennar eru á nám 5-12 ára nemenda. Samkvæmt henni á að leggja áherslu á eftirfarandi þætti þegar kemur að leiðsagnarnámi:

  • Námsmenning, væntingar og námsvitund
  • Skipulag
  • Áhugi, markmið, viðmið og fyrirmyndir
  • Spurningar og samræður
  • Endurgjöf

„Þegar ég kenndi við Vesturbæjarskóla veturinn 2006-2007 fékk skólinn styrk frá menntasviði borgarinnar til að skoða hvernig hægt væri að koma betur til móts við drengi í námi,“ segir Nanna.

Vesturbæjarskóli var á þeim tíma móðurskóli í verkefninu Drengir og grunnskólinn „vegna þess að við vorum að sjá niðurstöður meðal annars úr Pisakönnun og öðrum könnunum sem sýndu hvað drengir voru að dragast aftur úr í námi. Við vorum líklega sex kennarar í teymi sem vorum að skoða þetta og fengum við Ingólf Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, til að vera handleiðari okkar og koma með fræðilegan vinkil inn í verkefnið. Eftir að hafa lesið gögn og aflað okkur töluvert mikillar þekkingar og upplýsinga um hvernig staða drengja væri miðað við stöðu stúlkna í heiminum, hvað hefur verið gert og hvað hefur reynst vel þá komumst við að þeirri niðurstöðu að við þyrftum að fara og sjá með eigin augum einhverja skóla þar sem drengir hefðu náð góðum árangri.

Samkeppni er algerlega bönnuð. Samvinna og gagnkvæmur stuðningur eru lykilatriði.

Við höfðum samband við prófessor við Oxford, Michael Younger, en hann, Molly Warrington og Ros McLella voru búin að gera umfangsmikla rannsókn í Bretlandi, Under-Achieving Boys in English Primary Schools. Markmið hennar var að finna hvort það væri eitthvað í skólunum sem styddi betur við nám drengja en annað og hvort það væru einhverjir skólar í Bretlandi að ná betri árangri með drengi heldur en aðrir skólar.

Younger benti okkur á tvo skóla og er annar þeirra Ardleigh Green Junior School í London. Við fórum þangað vorið 2007 og hittum skólastjórann, John Morris, og kom í ljós að í þeim skóla mældist minni munur á námsárangri drengja og stúlkna en í öðrum skólum sem voru í rannsókninni sem var mjög viðamikil. Þetta kom skólastjóranum og kennurunum algjörlega í opna skjöldu vegna þess að þau höfðu ekki verið að gera neitt sérstakt fyrir stráka. John Morris var hins vegar sannfærður um að skýringanna væri að leita í innleiðingu á leiðsagnarnámi sem hafði átt sér stað nokkrum árum áður og sagðist hann hafa séð algjöra breytingu á strákum og viðhorfum þeirra til náms eftir að þau tóku upp þessa aðferðafræði sem byggir á aðferðum Shirley Clarke. Í rannsókninni var dregin sú ályktun að góðan árangur drengja í Ardleigh Green Junior School mætti fyrst og fremst skýra með góðum kennsluháttum sem hentuðu öllum nemendum óháð kyni.“

Áhugi íslensku kennaranna á náms- og kennsluaðferðum leiðsagnarnáms var vakinn og var John Morris í kjölfarið boðið að halda námskeið fyrir kennara Vesturbæjarskóla sem hann gerði síðsumars næsta ár. Hann var aðalfyrirlesari Öskudagsráðstefnu Menntasviðs Reykjavíkur og Kennarafélags Reykjavíkur, auk þess sem hann var með vinnustofu um leiðsagnarnám í samstarfi við kennara Vesturbæjarskóla.

Boltinn var farinn að rúlla og síðan hafa rúmlega 200 íslenskir kennarar og skólastjórnendur heimsótt Ardleigh Green Junior School auk þess sem John Morris og kennarar við skólann hafa haldið fjölmörg námskeið, og þá sérstaklega um leiðsagnarnám, fyrir íslenska kennara og skólastjórnendur bæði í Reykjavík og London. Þá hefur John Morris veitt nokkrum skólum í Reykjavík ráðgjöf til lengri eða skemmri tíma. Þess má geta að hann var árið 2012 valinn skólastjóri ársins í London. Þá hlaut hann OBE-orðuna sem Elísabet Bretadrottning veitir árið 2015.

Fyrirlestrar og námskeið

Nanna hætti störfum við Vesturbæjarskóla skömmu eftir að John Morris hélt þar námskeið og var um árabil verkefnastjóri á skrifstofu grunnskólamála á fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs sem hefur að mestu leyti skipulagt og haft milligöngu um samstarfið við John Morris. Nanna hefur í gegnum árin aflað sér þekkingar á aðferðum leiðsagnarnáms með því að sækja námskeið og ráðstefnur erlendis og skólaheimsóknum og lestri bóka til að byggja upp þekkingu til að geta síðan stutt skólana í Reykavík varðandi leiðsagnarnám.

Aðaláherslur hafa verið á efni og rannsóknir Shirley Clarke, John Hattie, Carol Dweck, Dylan Wiliam og James Nottingham.

„Meðal verkefna minna á skrifstofu skóla- og frístundasviðs var að taka þátt í að skipuleggja símenntun kennara, meðal annars með því að leita til viðurkenndra, erlendra sérfræðinga. Ætli John Morris hafi ekki komið hingað upp undir 20 sinnum á rúmlega 10 ára tímabili og lítið virðist draga úr áhuga kennara á námskeiðum hans. Það var svo mikil eftirspurn. Það var alltaf verið að hafa samband og biðja um aðstoð vegna þess að þeir kennarar sem áttuðu sig á því hvernig þetta virkaði og þeir skólastjórar sem höfðu trú á þessu vildu stuðning og þegar við hjá skóla- og frístundasviði auglýstum fundi um leiðsagnarnám þá fylltist allt, alveg sama hve stór salurinn var. Það segir bara til um hvað áhugi kennaranna var mikill og hve þörfin var rík sem var ótrúlega skemmtilegt.“

Þróunarverkefni

Skrifstofa skóla- og frístundasviðs stóð skólaárið 2017-2018 fyrir þróunarverkefni um leiðsagnarnám og var sótt um styrk til Endurmenntunarsjóðs grunnskóla. 17 grunnskólar skráðu sig og var í hverjum skóla starfandi innleiðingarteymi sem leiddi starfið innan skólans. Um 20 fræðslufundir um leiðsagnarnám voru haldnir á vegum skrifstofu skóla- og frístundasviðs, auk þess sem Shirley Clarke var með námskeið í mars árið 2018 sem um 450 kennarar og skólastjórnendur sóttu. Verkefnastjórar verkefnisins stofnuðu vefsíðu með hagnýtu efni um leiðsagnarnám sem finna má á slóðinni nammedleidsogn.wordpress.com.

Það er svo ­mikið sjálfstæði á Íslandi; ekki bara hjá nemendum heldur líka hjá kennurum.

Þá má lesa nánar um fyrirkomulag þróunarverkefnis skólaárið 2017-2018 í skýrslunni Leiðsagnarmat er málið, en Nanna og Edda G. Kjartansdóttir stýrðu verkefninu.

Sjö skólar sem óskuðu eftir að efla leiðsagnarnámið í starfi bættust við haustið 2018. Það var í höndum hvers skóla að setja sér markmið með þátttökunni og að ákveða að hve miklu leyti þeir nýttu tilboð skrifstofunnar varðandi fræðslu og umræður. Endurmenntunarsjóður grunnskóla styrkti verkefnið. 23 námskeið og fundir um leiðsagnarnám voru haldnir með aðkomu ýmissa sérfræðinga á skólaárinu og má lesa nánar um verkefnið í Skýrslu um leiðsagnarmat 2018-2019.

Fjórir þekkingarskólar

Nanna hætti síðan störfum vegna aldurs í sumar. „Ég var farin að hafa áhyggjur af því og margir farnir að tala við mig um hvernig stuðningi við skóla sem vildu auka hæfni sína í notkun leiðsagnarnáms yrði háttað þegar ég hætti að vinna. Ég hugsaði með mér að ég yrði að gera eitthvað svo það yrði til einhver þekking fyrir hina skólana þegar ég hætti.“

Skrifstofa skóla- og frístundasviðs auglýsti vorið 2019 eftir skólum sem óskuðu eftir að verða þekkingarskólar varðandi leiðsagnarnám og úr varð að fjórir skólar urðu fyrir valinu: Hlíðaskóli, Hamraskóli, Kelduskóli og Dalskóli. Hver skóli er með innleiðingarteymi.

„Megináherslan var lögð á að efla innleiðingarteymin þannig að þau yrðu sérfræðingar inni í skólunum og setti hver skóli sér markmið um hvaða þætti hann vildi efla og teymin stuðluðu að því.“

Nanna sótti um styrki til að byggja upp þekkingarskólana fjóra í Reykjavík og fékk styrki hjá Sprotasjóði, Endurmenntunarsjóði grunnskóla og Erasmus. Erasmus-styrkurinn var notaður til að heimsækja þrjá skóla í Bretlandi ásamt 19 kennurum og skólastjórnendum. Í einum þessara skóla starfar John Morris. „Þau sem fóru með mér út sannfærðust endanlega um hvað þessi aðferð, leiðsagnarnám, getur haft ótrúlega mikil áhrif jafnvel í aðstæðum sem við teljum algjörlega vonlausar. Ég vann síðan markvisst með innleiðingarteymum þessara fjögurra þekkingarskóla með að markmiði að þau fengju nægilega reynslu og þekkingu til að geta leiðbeint kennurum í öðrum skólum í framtíðinni.“

Skólaárið 2019-2020 var stuðningi fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs einkum beint að þessum fjórum þekkingarskólum. Vefsíðu verkefnisins var áfram haldið úti og hún tengd við vef skrifstofunnar, menntastefna.is. Skrifstofa skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur stóð fyrir opnum fundi fyrir skólana sem hafa tekið þátt í eflingu leiðsagnarnáms, auk þess sem hún hélt 12 fræðslufundi í einstökum skólum sem óskuðu eftir því – fyrir utan þá fundi sem haldnir voru í þekkingarskólunum.

„Ég hélt fræðslufundi fyrir innleiðingarteymin og fékk utanaðkomandi sérfræðinga við Háskóla Íslands og víðar til að tala til dæmis um stærðfræði og leiðsagnarnám. Við fengum til dæmis Guðbjörgu Pálsdóttur við HÍ til að vera með námskeið í stærðfræði og leiðsagnarnámi sem þurfti að endurtaka fimm sinnum til að mæta áhuga kennara og Sólveigu Zophoníasdóttur frá Akureyri til að tala um leiðsagnarnám á unglingastigi og svo var í eitt skiptið talað um leiðsagnarnám í tengslum við börn sem eru með annað móðurmál en íslensku svo eitthvað sé nefnt. Ég leitaði til sérfræðinga hér og þar og var með námskeið annars vegar fyrir innleiðingarteymin og hins vegar opin námskeið þar sem allir kennarar­nir í þekkingarskólunum máttu koma.“

Mismikill áhugi kennara

Í skýrslunni um leiðsagnarnám skólaárið 2019-2020 segir: „Markmiðið með stuðningi við þekkingarskólana er að efla skóla/kennara í borginni sem hafa næga þekkingu og reynslu í aðferðum leiðsagnarnáms til að geta í framtíðinni stutt við aðra grunnskóla og einstaka kennara með jafningjastuðningi.“

Fyrir hönd skóla- og frístundasviðs fór Nanna í vettvangskannanir í hverjum þekkingarskóla og fylgdist með kennslustundum til að skoða framkvæmd leiðsagnarnámsins og var fjallað um niðurstöðurnar á sameiginlegum fundi teymanna í vor. Auglýstir voru fjórir opnir fræðslufundir um leiðsagnarnám á vegum þekkingarskólanna en einungis tveir þeirra voru haldnir vegna COVID-19: „Hvernig byggjum við upp námsmenningu sem er forsenda leiðsagnarnáms?“ og „Að setja námsmarkmið, viðmið og nota fyrirmyndir á unglingastigi“. Þess má geta að efni hinna fundanna var tekið upp á myndband sem finna má á slóðinni nammedleidsogn.wordpress.com

Haldnir voru rýnifundir með hópi nemenda í hverjum þekkingarskóla til að athuga hvort áherslur leiðsagnarnámsins hefðu náð til þeirra. Þá var einnig rætt við nemendur í tveimur öðrum skólum sem hafa ekki verið að vinna markvisst með leiðsagnarnám til að fá samanburð.

Vafasamt þykir að fullyrða um niðurstöður þar sem úrtakið var lítið en þær benda hins vegar til þess að munur sé á reynslu nemenda varðandi áherslur leiðsagnarnáms en hún er meiri á meðal nemenda í þekkingarskólunum fjórum. Munurinn virðist þó vera mestur milli einstakra bekkja sem þykir sýna að það skipti meira máli hver kenni nemendunum heldur en í hvaða skóla þeir séu.
Þess má geta að erfiðara var um vik en ella að hitta rýnihópana vegna COVID-19 og verkfalla en Nanna segir að þetta hafi samt tekist ágætlega. „Þetta átti að vera stærra og fleiri hópar. Við völdum með tilviljanakenndu úrtaki hóp nemenda í hverjum skóla fyrir sig og tóku sérfræðingar af skóla- og frístundasviði viðtöl við nemendurna. Við vorum síðan með fjóra skóla til samanburðar þar sem ekki er lögð áhersla á leiðsagnarnám en við vorum að reyna að greina hvort það væri munur á nemendum í þekkingarskólunum og öðrum og hver sá munur væri.

Við sáum að munurinn er meiri á milli kennara heldur en á milli skóla, en nemendur í tilteknum árgöngum í tilteknum þekkingarskólum eru búnir að tileinka sér best hugmyndafræði leiðsagnarnáms. Það var kannski stóri munurinn.

Það er svo mikið sjálfstæði á Íslandi; ekki bara hjá nemendum heldur líka hjá kennurum. Kennarar hafa svo mikið val um hvort þeir fylgi einhverri stefnu eða ekki og þó að skóli ákveði að verða móðurskóli eða þekkingarskóli í leiðsagnarnámi er ekkert endilega víst að allir hafi áhuga á því. Kennarar hafa mismikinn áhuga á leiðsagnarnámi en á meðan sumir eru ástríðufullir í þróunarverkefninu láta aðrir sig það minna varða og það sá maður í þessum rýnihópsviðtölum. Svo sá maður líka að í sumum bekkjum var greinilega mikið verið að vinna með þetta og þar voru krakkarnir algjörlega með þetta á hreinu.“

Allir þekkingarskólarnir fjórir munu halda áfram þróun leiðsagnarnáms og vonandi munu kennarar þar meðal annars taka þátt í eða annast að öllu leyti kennslu á námskeiðum sem skrifstofa skóla- og frístundasviðs stendur fyrir um leiðsagnarnám. Þá er gert ráð fyrir að þeir muni taka á móti kennurum annarra skóla sem óska eftir að koma í vettvangsheimsóknir til að sjá leiðsagnarnámið í framkvæmd.

Bók um leiðsagnarnám

Eins og komið hefur fram hefur Nanna hætt störfum hjá skrifstofu skóla- og frístundasviðs vegna aldurs og segist hún þakklát fyrir að fá að taka þátt í þessu verkefni tengdu leiðsagnarnámi. „Mér finnst það vera hápunktur á starfsferli mínum að hafa fengið að kynnast þessu, fá að taka þátt í þessu og fá að vinna með það sem maður hefur ástríðu fyrir að gera. Það er vegna þess að ég er svo sannfærð um og ég er búin að sjá svo margar staðfestingar á því hvað þetta skilar ótrúlega miklum árangri þegar rétt er að þessu staðið. Það er ekki bara það að þetta valdefli nemendur – þetta valdeflir líka svo mikið kennara. Mér hefur í gegnum tíðina fundist kennarar stundum ekki varðveita fagmennsku sína nógu mikið og mér finnst leiðsagnarnámið gefa þeim svo mikla fagmennsku vegna þess að þetta byggir allt á svo miklum rannsóknum. Þarna geta kennarar gert sér grein fyrir hvers vegna þeir gera það sem þeir gera, hvaða áhrif það hefur og rökstutt það; það gerir þá að fagmönnum. Það er ekki nógu sterkt að gera eitthvað af því að maður hefur alltaf gert það og gengið vel.“

Nanna segir að þetta verkefni hafi líka gefið sér mikla yfirsýn og þekkingu. „Mér finnst þessi fræðaheimur ofsalega áhugaverður og skemmtilegur. Þetta hefur líka gefið mér mjög ánægjuleg samskipti við marga skólastjóra og kennara auk þess sem ég hef verið í ótrúlega dýrmætum samskiptum við erlenda sérfræðinga. Svo er ég alltaf að uppgötva eitthvað nýtt og það er fátt skemmtilegra heldur en að fá að uppgötva eitthvað nýtt, sérstaklega ef maður sér hlutina frá nýju sjónarhorni.“

Nanna er að skrifa bók um leiðsagnarnám og segist vona að hún geti orðið dýrmætur stuðningur við kennara og skóla þannig að þeir geti notað hana til að byggja upp leiðsagnarnám. „Ég reyni að hafa hana mjög praktíska en um leið finnst mér mikilvægt að kennarar skilji hvers vegna hlutirnir séu svona og hvaða áhrif það hafi á nám nemenda. Það er ekki nóg að spyrja bara hvað nemendur eigi að gera heldur þarf að spyrja sig að því hvaða hæfni nemendur eigi að tileinka sér og hvers vegna. Slíkt krefst ígrundunar, samræðu og gagnrýninnar hugsunar.“

 

Viðtalið við Nönnu birtist í haustútgáfu Skólavörðunnar 2020