Hækkun á styrkjum úr Vísindasjóði FL og FSL

Fréttir|21. mars 2014

Á fundi stjórnar Vísindasjóðs FL og FSL 19. mars var samþykkt að hækka eftirfarandi styrki.

  1. Styrkur úr A deild vegna gistingar hækkar úr 8.000 kr. í 15.000 kr.
  2. Ferðastyrkur úr B deild vegna lokinna háskólaeininga hækkar úr 10.000 kr. í 15.000 kr. á önn til þeirra sem búa lengra en 100 km frá háskóla og úr 20.000 kr. í 30.000 kr. á önn til þeirra sem búa 250 km eða lengra frá háskóla.

Athugið að breytingin hefur þegar tekið gildi.

1. júní n.k. hækka styrkir vegna skólaheimsókna sem hér segir:

  1. Vegna skólaheimsókna innan Evrópu úr 100.000 kr. í 120.000 kr.
  2. Vegna skólaheimsókna utan Evrópu úr 130.000 kr. í 140.000 kr.

Þá ákvað stjórn sjóðsins að taka upp nýjan ferðastyrk vegna ferða til og frá flugvelli innanlands, þegar skólar fara í skólaheimsóknir til útlanda (Á 4ra ára fresti). Þeir sem búa 100 km eða lengra frá flugvelli fá greiddar 15.000 kr. og þeir sem búa 250 km eða lengra frá flugvelli fá greiddar 30.000 kr.

Hægt er að sækja um þennan nýja styrk frá og með 1. júní 2014.