Hannes Þorsteinsson lætur af störfum hjá KÍ

Fréttir|30. apríl 2026
Hannes Kjartan Þorsteinsson

Hannes státar af lengstum starfsaldri hjá kennarasamtökunum.

Hannes Kjartan Þorsteinsson, skrifstofustjóri Kennarasambandsins, lætur af störfum í dag. Hannes hefur starfað hjá Kennarasambandinu frá stofnun þess árið 2000 og státar af lengstum starfsaldri hjá sambandinu.

Margir félagar í KÍ þekkja Hannes enda hefur hann verið allt í öllu hjá sambandinu og ávallt reiðubúinn að leggja lið og aðstoða við að greiða úr margs konar málum. Hannes þekkir sögu Kennarasambands betur en flestir og er auk þess einn fárra sem hafa setið öll níu þing sambandsins.

Hannes lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1986 og hóf þá störf sem kennari í Vesturbæjarskóla. Árið 1994 varð Hannes formaður Kennarafélags Reykjavíkur og gegndi því embætti í tvö ár.

Eftir tíu ára starf í Vesturbæjarskóla, árið 1996, var Hannes ráðinn í starf launafulltrúa hjá Kennarasambandi Íslands hinu eldra.

Við stofnun Kennarasambandsins árið 2000 réði Hannes sig á skrifstofu Félags grunnskólakennara. Tveimur árum síðar tók Hannes við starfi skrifstofustjóra af Valgeiri Gestssyni. Þvi starfi hefur hann gegnt æ síðan.

Kennarasambandið og starfsfólk á skrifstofu óskar Hannesi heilla og farsældar til framtíðar um leið og honum er færðar þakkir fyrir frábær störf og góða viðkynningu á skrifstofunni.