Hvernig drögum við úr álagi í kennarastarfinu?

Fréttir|1. júní 2026

Tækifæri eru til úrbóta í skólastarfi, einkum er kemur að því að draga úr álagi sem kennarar og starfsfólk grunnskóla finnur fyrir. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu.

Mikill munur virðist vera á álagsþunga meðal starfsfólks grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram i nýlegri skýrslu, sem ber heitið Starfsumhverfi í grunnskólum, álag, ástæður og úrbætur og var unnin af dr. Ingvari Sigurgeirssyni prófessor og dr. Lilju M. Jónsdóttur. 

Skýrsluhöfundar nefna fjölda álagsþátta sem koma fram í rannsókninni, svo sem hegðunarvanda nemenda, samskipti við foreldra, manneklu og neikvæða umræðu um skólastarf. Rannsóknin var unnin þannig að tekin voru rýnihópaviðtöl við 163 starfsmenn í 25 grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og svo var send spurningakönnun á nánast allt starfsfólk grunnskólanna – og bárust um tvö þúsund svör. 

„Afar mikill munur reynist vera á því hversu þungt álag í starfi hvílir á starfsfólki í grunnskólum, allt frá því að vera mjög lítið yfir í að vera mjög þungt og jafnvel þrúgandi.
Mesta álagið hvílir á umsjónarkennurum. Einn af hverjum tíu umsjónarkennurum telur sig búa við þrúgandi álag," segir orðrétt í skýrslunni. 

Þá segir í skýrslunni að álag hafi aukist til muna síðust ár og voru þessir álagsþættir oftast „tengdir hegðunar- og samskiptavanda, kennslu barna með annað móðurmál en íslensku, krefjandi samskiptum við foreldra, neikvæðri umræðu um skólastarf, skriffinnsku, manneklu og mikilli vinnu við námsefnisgerð. Þessir þættir voru gjarnan tengdir umfangsmiklum og tímafrekum störfum umsjónarkennara".

Þessi atriði komu fram í niðurstöðunum

  • Mat viðmælenda, sem og margra þeirra sem svöruðu spurningakönnuninni, var að þátttaka skólanna í uppeldi hefði aukist til muna og að breyttir uppeldishættir á mörgum
    heimilum, einkum vaxandi óöryggi foreldra í uppeldishlutverkinu, hefðu aukið álag.
  • Samskipti við foreldra hafa vaxið mikið, einnig kröfur um alls kyns þjónustu og ráðgjöf og
    eru samskiptin oft krefjandi og stundum neikvæð.
  • Neikvæð umræða um skólastarf í samfélaginu var nefnd sem þungur og vaxandi álagsþáttur.
  • Í mörgum skólanna hefur verið ráðist í aðgerðir til að draga úr álagi, m.a. með því að veita kennurum aukinn stuðning, t.d. með ráðningu fleiri starfsmanna eða koma á fót
    nýjum úrræðum eins og að færa sérkennsluna inn í bekkjarstarfið.
  • Góðir og styðjandi stjórnunarhættir eru taldir þýðingarmiklir til að draga úr álagi. Má í því sambandi nefna gott aðgengi að stjórnendum, að þeir sýni sveigjanleika, treysti
    kennur

Fjórar leiðir til úrbóta sem voru oftast nefndar

  • að fjölga sérfræðistörfum, helst innan skólanna
  • að fjölga úrræðum vegna barna með hegðunar- eða samskiptavanda og barna af erlendum uppruna
  • að efla námsefnisútgáfu
  • auka fræðslu fyrir foreldra (foreldrafærninámskeið).

Einnig kom fram að brýnast væri að: „að fjölga úrræðum fyrir börn sem kljást við alvarleg geðræn, hegðunar- eða félagsleg vandamál. Eindregið er óskað eftir skýrari ferlum varðandi börn sem ekki ráða við eigin hegðun. Svipaðar úrbætur voru nefndar í svörum við opnum spurningum í spurningakönnun, en oftast þessar: Fækkun nemenda í námshópum, fjölgun fagfólks, aukinn stuðningur og fjölgun úrræða, ekki síst fyrir nemendur sem glíma við alvarlegan náms- eða hegðunarvanda.“

Mælt er með því að starfsfólk skólanna og fræðsluyfirvöld i hverju sveitarfélagi fari skipulega yfir þær hugmyndir um úrbætur sem fram komu í rannsókninni, greini þær og
meti. Mikilvægt er að skoða vandlega hvort vænlegt er að sveitarfélög hafi með sér samstarf um úrræði (sérskóla, sérdeildir, fag- eða ráðgjafarteymi).

Í þeim skólum sem innleitt hafa teymiskennslu virðast sérstök sóknarfæri fólgin í því að samþætta hana stoðþjónustunni. Sveitarfélögin gætu sameinast um kennsluráðgjöf til að styrkja slíka innleiðingu. Þá er minnt á að rannsóknir benda til þess að veruleg sóknarfæri tengist innleiðingu teymiskennslu í þeim skólum þar sem það hefur ekki verið gert, séu skilyrði til þess.

Þurfum að bregðast við ákallinu

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, sagði í viðtali við Vísi, að skýrslunni bæri að fagna og að bregðast þurfi við ákalli um betri stuðning við kennara frá sveitarfélögunum. 

„Hvernig stendur á því að meirihluti kennara telur sig fá lítinn eða engan stuðning í starfi. Við þurfum að bregðast við því ákalli, það er alveg augljóst." sagði Magnús í fyrrnefndu viðtali.

Fram kemur í niðurstöðum rannsóknarinnar að umsjónarkennarar finna fyrir mestu álagi í starfi. Magnús segir það einnig hafa komið fram í könnun sem KÍ gerði meðal félagsfólks. 

„Það ræðst bæði af samsetningu nemendahópanna og líka miklum samskiptum við foreldra og aðra aðila fyrir utan skólastofuna, þannig að það kemur ekki á óvart. Við höfum reyndar líka spurt í okkar könnunum hvernig fólk telur sig ná að stýra álaginu og þar höfum við fengið tölur um að fólk býr við mikið álag en telur sig ráða ágætlega við það,“ segir Magnús Þór.