Hvernig er hægt að skapa heilbrigða vinnustaðamenningu?

Fréttir|9. mars 2026

Rannsóknir sýna að markvissar aðgerðir geta bætt vinnustaðamenningu og líðan starfsfólks. Þetta verður rætt á málþingi á fimmtudag.

Málþing fer fram á Grand Hótel Reykjavík á fimmtudag og er haldið í framhaldi af samstarfsverkefni Vinnueftirlitsins, Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga um vinnustaðamenningu í leik- og grunnskólum 2023-2025. Kannanir sem framkvæmdar hafa verið á undanförnum misserum hafa gefið til kynna að starfsfólk í leik- og grunnskólum upplifir meira andlegt áreiti en starfsfólk í mörgum öðrum starfsgreinum, sem undirstrikar mikilvægi þess að hlúa þurfi sérstaklega að vellíðan þess og vinnuumhverfi.

Niðurstöður samstarfsverkefnis sýna að markvissar aðgerðir geta bætt vinnustaðamenningu og líðan starfsfólks. Tilgangur málþingsins er að miðla þeim lærdómi sem af verkefninu hlaust og gefa fleiri vinnustöðum tækifæri á að nýta hann.

Málþingið hefst klukkan 12.30 og stendur til 16:00.

Fundarstjóri verður: Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara.

Málþingið er öllum opið. Hægt verður að mæta á staðinn eða flylgjast með í streymi en nauðsynlegt er skrá þátttöku. 

Skráning fer fram hér.

Þessi erindi verða flutt

Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir, forstjóri Vinuueftirlitsins

  • Opnunarávarp

Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands

  • Samstarfsverkefni um vinnustaðamenningu skóla - Hvernig gekk og hvað höfum við lært?

Þátttökuskólar í samstarfsverkefninu fjalla um reynslu sína af verkefninu

  • Sunnulækjarskóli: Teymisvinna styrkir sálrænt öryggi, vellíðan starfsfólks og vinnustaðamenningu
  • Heiðarborg: Bætt samskipti og samskiptasáttmáli styrkja traust og vinnustaðamenningu
  • Rofaborg: Skýr hlutverk og skýrt verklag bæta samskipti, vellíðan og vinnustaðamenningu
  • Klappir: Valdeflandi stjórnun og forysta með markvissri endurgjöf styrkja vellíðan og vinnustaðamenningu
  • Brekkuskóli: Samvera og óformleg samskipti styrkja samstarfsvilja, vellíðan og vinnustaðamenningu

Friðný Björg Sigurðardóttir, mannauðsráðgjafi hjá Akureyrarbæ

  • Hagnýting verkefnisins: Hvað svo?

Kristín Gísladóttir, skólastýra á leikskólanum Uglukletti

  • Stefna, aðhald og menning - Dugar að krossa fingur og vona það besta?

Dr. Anna Magnea Hreinsdóttir, lektor við Háskóla Íslands

  • Vinnustaðamenning er ábyrgð okkar allra. Hver er lærdómurinn og hvað gerum við nú?

Sigrún B. Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum hjá Kennarasambandi Íslands

  • Mikilvægi verkefnisins og lærdómur

Anna Ingadóttir, sérfræðingur á stjórnsýslusviði hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

  • Við verðum að horfa á heildarmyndina

 

Nánar má lesa um samstarfsverkefnið hér á vefnum. 

Þar má jafnframt nálgast skýrslu um hugmyndafræðilegan bakgrunn þess, framkvæmd og mat á árangri.