Ingibjörg Kristleifsdóttir sjálfkjörin formaður FSL
Fréttir|14. febrúar 2014
Ingibjörg Kristleifsdóttir er sjálfkjörin formaður Félags stjórnenda leikskóla næsta kjörtímabil, frá aðalfundi 2014 til aðalfundar 2017. Ingibjörg var ein í kjöri til formanns en frestur til að bjóða sig fram rann út 20. janúar síðastliðinn.
Ingibjörg hefur verið formaður FSL frá stofnun félagsins árið 2010.
Samkvæmt lögum félagsins skal kjósa stjórn Félags stjórnenda leikskóla í allsherjaratkvæðagreiðslu eigi síðar en 6 vikum fyrir aðalfund sem verður haldinn 8. og 9. maí næstkomandi. Alls hafa tíu gefið kost á sér til stjórnar og verða frambjóðendur kynntir á næstunni. Í önnur trúnaðarstörf verður kosið á aðalfundinum.