Íslenskur vefur fyrir börn fær verðlaun

Fréttir|13. febrúar 2014

Íslenski vefurinn paxel123.com hlaut á dögunum verðlaun í Evrópukeppni um besta netefnið fyrir börn. Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í Nóaborg, tók við verðlaununum við hátíðlega athöfn í Brussel í Belgíu.

Hugmyndina að paxel123.com má rekja til vinnu Önnu Margrétar en á Nóaborg hafa stærðfræði og ritmál verið leiðarljós á leikskólanum. Vefurinn er gerður fyrir nemendur á leik- og grunnskólaaldri sem eru að stíga sín fyrstu skref í að vinna með orð og hugtök móðurmálsins og stærðfræði. Leikirnir á paxel123.com örva formskynjun, talnaskilning og rökhugsun auk þess sem þar er að finna rímleiki og stafarugl. Leikirnir henta einnig sem ítarefni við sérkennslu og fyrir þá sem vinna með börnum af erlendum uppruna.

Aðgangur að vefnum er ókeypis, hann inniheldur engar auglýsingar, engrar skráningar er krafist og engum persónulegum upplýsingum er safnað um notendur.

Verðlaunin voru veitt á Alþjóðlega netöryggisdeginum en það er Insafe, samstarfsnet Evrópuþjóða sem taka þátt í netöryggisáætlun ESB, og Evrópska skólanetverkefnið sem stóðu að samkeppninni um best netefnið fyrir börn. Paxel123.com var valinn besti vefurinn í flokki fullorðinna áhugamanna. Þá má geta þess að grallarar.is voru einnig tilnefndir til verðlauna en báðir þessir vefir unnu til Íslandsverðlauna sem besta netefnið 2013.