ISTP skýrslan er komin út

Fréttir|22. janúar 2026

Afrakstur alþjóðlega leiðtogafundarins, ISTP, hefur verið tekinn saman í yfirgripsmikilli skýrslu.

Lokaskýrsla um ISTP 2025 – alþjóðlegan leiðtogafund, sem fór fram hérlendis í mars, hefur verið birt. Fundinn sóttu menntamálaráðherrar og forystufólk kennarasambanda frá 22 löndum. 

Fundurinn fór fram í Hörpu og var sá fimmtándi í röðinni. Kennarasambandið og mennta- og barnamálaráðuneytið voru gestgjafar fundarins og unnu saman að skipulagi, en þátttakendur voru alls um 160 talsins. 

Umræðuefni fundarins var sem fyrr helgað kennarastarfinu, áskorunum til framtíðar, starfsumhverfi og starfsþróun kennara og hvernig best megi innleiða menntaumbætur. Þátttökuríkin deildu þekkingu sinni og reynslu um hvernig best verði stuðlað að gæðamenntun.

Áherslan var á leikskólastigið og mikilvægi þess í að jafna tækifæri nemenda með ólíka félags- og fjárhagsstöðu til náms og stuðla að bættum námsárangri. Stuðningur við kennara og mótun gagnrýnnar hugsunar nemenda gagnvart samfélaginu ásamt getu til að leggja eigið mat á upplýsingar bar hátt á góma. Þá var lýðræði í menntun og virk þátttaka nemenda í að móta eigin framtíð til umræðu, ásamt ábyrgri notkun tækninýjunga. 

Skýrslan er í senn fróðleg og ítarleg. Farið er yfir umræður fundarins í öllum efnisflokkum. Þá er samantekt Katrínar Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, en hún stýrði fundinum, í skýrslunni sem og skuldbindingar Íslands og annarra þátttökuríkja.

„Kennarar gegna lykilhlutverki í menntaumbótum. Þess vegna er þessi vettvangur, ISTP, svo mikilvægur þar sem hér á sér stað hreinskilið samtal milli ráðherra og formanna kennarasamtaka sem ég vona að þið miðlið áfram til kennara og skólasamfélagsins í ykkar löndum. Við verðum að huga að menntamálum á þessum tímum þegar spenna ríkir í alþjóðamálum og áskoranir blasa við þegar kemur að tækninýjungum og umhverfismálum, og sterkt menntakerfi gegnir lykilhlutverki í að takast á við þær áskoranir," sagði Katrín Jakobsdóttir undir lok fundarins. 

Lesa skýrsluna