Kallað eftir ágripum á ráðstefnu um tungumál

Fréttir|3. september 2026

Háskólinn á Akureyri efnir til ráðstefnu um móðurmálskennslu og kennslu annars máls.

Háskólinn á Akureyri efnir til ráðstefnu um móðurmálskennslu og kennslu annars máls.

Kallað er eftir tillögum að einstökum erindum og málstofum sem tengjast þema ráðstefnunnar og öðrum viðfangsefnum á sviði móðurmálskennslu.

áskólinn á Akureyri efnir til ráðstefnunnar; Móðurmál og önnur mál: Mörk og flæði, möguleikar og áskoranir.

Ráðstefnan, sem haldin verður í apríl 2027, er vettvangur fyrir fræðafólk, kennara og doktorsnema til að miðla rannsóknum, skiptast á hugmyndum og ræða þróun móðurmáls- og kennslu annars máls.

Ráðstefnan er á vegum Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Kennaradeildar Háskólans á Akureyri. Að þessu sinni er ráðstefnan haldin í samstarfi við NNFF – Norrænt net um rannsóknir á kennslufræði fyrsta máls.

Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru:

  • Anna-Elisabet Holm, PhD, lektor í færeysku sem öðru máli við deild færeyskrar tungu og bókmennta
  • Line Krogager Andersen, PhD, rannsakandi og dósent í íslensku við kennaradeild Háskólans á Akureyri
  • Brynhildur Þórarinsdóttir, rithöfundur og dósent í íslensku við kennaradeild Háskólans á Akureyri


Kallað eftir ágripum
Óskað er eftir tillögum að einstökum erindum og málstofum sem tengjast þema ráðstefnunnar og öðrum viðfangsefnum á sviði móðurmálskennslu. Opið er fyrir innsendingar til 30. október 2026.


Dagskrá og leiðbeiningar um innsendingu ágripa