Kallað eftir framboðum í trúnaðarstörf hjá FG

Fréttir|29. apríl 2026

Kjörnefnd Félags grunnskólakennara kallar eftir framboðum í þrjár nefndir félagsins.

Samkvæmt lögum FG er hér með auglýst eftir framboðum og/eða tilnefningum í samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd FG fyrir næsta kjörtímabil frá aðalfundi 2026 til aðalfundar 2030.
 
Á vef félagsins er hægt að kynna sér lög FG varðandi nefndir.

Óskað er eftir framboðum í:

  • Samninganefnd 10 fulltrúa (5 aðal og 5 vara)
  • Skólamálanefnd 11 fulltrúa (6 aðal og 5 vara)
  • Kjörnefnd 6 fulltrúa (3 aðal og 3 vara)

Framboðum og tilnefningum í trúnaðarstörf skal skila fyrir klukkan tólf á hádegi þriðjudaginn 5. maí 2026. Þetta á líka við um þau sem hyggjast bjóða sig fram aftur. 

Tilkynning um framboð sendist á kjornefndfg@ki.is.

Í póstinum skal koma fram nafn, starfsheiti, vinnustaður og kennitala. Mynd þarf að fylgja framboðstilkynningu. 

 

Kosningarnar

Atkvæðamagn ræður því hverjir hljóta kjör sem aðalfulltrúar og hverjir verða varafulltrúar. 

  • Atkvæðagreiðsla hefst klukkan 12 á hádegi þriðjudaginn 19. maí
  • Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan 12 á hádegi föstudaginn 22. maí. 


Með kveðju, 
kjörnefnd Félags grunnskólakennara
Páll Erlingsson, Áslandsskóla
Inga Lóa Hannesdóttir, Grunnskólanum í Hveragerði
Erla Rán Kjartansdóttir, Brekkuskóla

Kjörnefnd FG skipa

Páll Erlingsson, Áslandsskóla