Kennarar segja núverandi ástand óviðunandi

Leikskólakennarar í Reykjavík lýsa yfir stuðningi við kröfur leikskólastjóra um bætt starfsumhverfi leikskólanna.
„Óstöðugleikinn í leikskólanum hefur áhrif á alla sem þar starfa og er núverandi ástand óviðunandi."
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri ályktun sem stjórn Reykjavíkurdeildar Félags leikskólakennara og trúnaðarmenn félagsins hafa sent frá þér. Kennararnir lýsa fullum stuðningi við málflutning leikskólastjóra í borginni sem kröfðust tafarlausra aðgerða er kemur að langvarandi vanda í starfsumhverfi skólanna.
Ályktunin hljóðar svo:
Stjórn 1. deildar FL og trúnaðarmenn í leikskólum Reykjavíkur lýsa yfir stuðningi við kröfur leikskólastjóra í Reykjavík vegna bréfs sem þeir sendu til borgaryfirvalda í síðustu viku. Í bréfinu var lýst yfir áhyggjum af aðgerðaleysi borgaryfirvalda gagnvart langvarandi þekktum vanda í starfsumhverfi leikskóla borgarinnar.
Vonir okkar vöknuðu að með Reykjavíkurleiðinni væru forsendur fyrir vandaðra og öruggara námsumhverfi fyrir börn borgarinnar. Óstöðugleikinn í leikskólanum hefur áhrif á alla sem þar starfa og er núverandi ástand óviðunandi.
Fyrir hönd 1. deildar FL og trúnaðarmanna FL í Reykjavík
Linda Ósk Sigurðardóttir formaður