KFR gefur uppskrift að KÍ-lopapeysu

Fréttir|23. október 2026
Guðbjörg íris Atladóttir og Kristín Björnsdóttir, frá KFR, Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, og Mjöll Matthíasdóttir, formaður FG.

Kennarar landsins geta brátt klæðst lopapeysu sem er sérstaklega hönnuð fyrir þá og skartar merki Kennarasambands Íslands.

Guðbjörg Íris Atladóttir, kennari í Rimaskóla og stjórnarmaður í Kennarafélagi Reykjavíkur, og Kristín Björnsdóttir, formaður Kennarafélags Reykjavíkur, færðu Magnúsi Þór Jónssyni, formanni KÍ, lopapeysu með merki KÍ að gjöf.

Peysan er prjónuð úr léttlopa og uppskriftin verður brátt fáanleg. Hvernig kviknaði hugmyndin? „Ég elska íslensku rolluna og prjóna mikið úr lopa. Mig hefur lengi langað að prjóna mér lopapeysu sem tengist mínu starfi og nota merki Kennarasambandsins í það. Í sumar ákvað ég svo að komið væri að þessu og hannaði peysuna og mynstrið í samvinnu við æskuvinkonu mína, Katrínu Björk Sigríðardóttur. Ég fékk nokkra prufuprjónara til þess að prjóna fyrir mig, þar á meðal Kristínu,“ segir Guðbjörg Íris, en peysan hlaut nafnið Kveikja. 

Þær stöllur ætla ekki að láta þar við sitja. „Kennarafélag Reykjavíkur fagnaði 45 ára afmæli þann 17. október síðastliðinn. Af því tilefni ætlum við að gefa öllum kennurum uppskriftina að peysunni sem er nú í lokavinnslu og kemur út kringum mánaðamót, þannig að hún verður afmælisgjöf Kennarafélags Reykjavíkur til kennara.“

 

Ístex gaf lopa í prufupeysurnar

Peysan er prjónuð úr léttlopa og gaf Ístex léttlopa í prufupeysurnar. „Við erum afar þakklátar Ístex fyrir að styrkja okkur með lopa og vonandi verður bara vel tekið í þetta verkefni. Við erum að hugsa peysuna fyrir alla kennara og þess vegna er bara blátt í uppskriftinni en hver og einn getur svo auðvitað aðlagað litina að sínu aðildarfélagi,“ segir Guðbjörg Íris.

Kennarafélag Reykjavíkur stefnir á samprjón á nýju peysunni Aðspurðar hvort mikið sé prjónað á kennarastofum landsins telja þær stöllur svo almennt vera. Guðbjörg Íris segir að nokkrar KÍ-peysur hafi verið prufuprjónaðar á kennarastofu Rimaskóla upp á síðkastið, en þar er einmitt starfræktur prjónaklúbburinn Lop’og prjónó. „Við tókum ákvörðun um að vera með eitt samprjón á ári til þess að vera með handavinnu á kennarastofunni í stað þess að tala um vinnuna í öllum frímínútum, þannig að segja má að það sé öflugur prjónaklúbbur í Rimaskóla,“ segir Guðbjörg Íris og Kristín bætir því við að Kennarafélag Reykjavíkur stefni á að bjóða upp á samprjón áður en langt um líður, þar sem kennarar geta hist og prjónað nýju peysuna saman.

„Við erum alltaf að reyna að upphugsa nýjar leiðir til þess að ná til kennara og skapa viðburði fyrir okkar félagsfólk. Það er mjög ríkjandi í okkar starfi að efla samstöðu, jákvæðni og baráttuanda og þótti okkur þetta bæði öðruvísi og skemmtileg leið til þess. Það er gaman að sjá eitthvað verða að veruleika sem búið er að vera svo lengi í vinnslu og sérstaklega skemmtilegt að það sé núna þegar forsvarsfólkið okkar er að fara út um allt land til þess að tala okkar máli – vonandi verður peysan bara með í för,“ segir Kristín að lokum.