KÍ auglýsir eftir lögfræðingi í fullt starf

Fréttir|6. apríl 2026

Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar 100% starf lögfræðings í teymi félags- og kjaramála á skrifstofu sambandsins.

Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á réttindamálum launafólks og kjarasamningum.

Starfið er fjölbreytt og krefjandi og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta lögfræðilega þjónustu við KÍ, aðildarfélög þess og félagsfólk.

Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir framúrskarandi samskiptahæfni, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi sterkan vilja til að styðja við
starfsemi og markmið KÍ.

Helstu verkefni og ábyrgð lögfræðings

  • Verkefnastjórnun lögfræðilegra verkefna innan KÍ
  • Lögfræðileg ráðgjöf til stjórnar, starfsfólks, aðildarfélaga og félagsfólks
  • Ráðgjöf/þátttaka í kjarasamningsgerð að beiðni formanna aðildarfélaga
  • Yfirlestur samninga og samningagerð
  • Mat á lagalegri áhættu og umsagnir um lagafrumvörp
  • Aðstoð við undirbúning dómsmála og önnur lögfræðileg úrlausnarefni
  • Þátttaka/seta í nefndum, ráðum og samráðshópum fyrir hönd KÍ
  • Þróun og yfirferð verkferla í lögfræðilegu tilliti


Menntunar- og hæfnikröfur

  • Fullnaðarpróf í lögfræði
  • Að minnsta kosti tveggja ára starfsreynsla
  • Mjög góð þekking á vinnurétti, stjórnsýslurétti og persónuvernd
  • Mjög góð greiningarhæfni
  • Mjög góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og drifkraftur í starfi.
  • Lausnamiðuð hugsun og nákvæmni
  • Hæfni til að vinna undir álagi og góð skipulagshæfni
  • Hæfni til að starfa í teymi, miðla þekkingu og stuðla að jákvæðu og árangursríku samstarfi.
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Þekking á Norðurlandamáli er kostur
  • Lögmannsréttindi eru kostur

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Félags atvinnurekanda og Visku stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl. Umsóknir skulu berast í gegnum Alfreð og verður öllum umsóknum svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
1. Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla og þekking.
2. Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.


Nánari upplýsingar veitir Dagný Ingadóttir, framkvæmdastýra KÍ, dagny@ki.is.