KÍ kallar eftir víðtæku samtali um menntamál

Fréttir|7. október 2026

Blásum byr í seglin! Svo hljóðaði yfirskrift blaðamannfundar sem Kennarasambandið efndi til fyrr í dag. Á fundinum voru kynntar tillögur KÍ að stefnumótun í íslensku skólakerfi til framtíðar. Jafnframt hefur verið efnið verið tekið saman í bæklingi og á upplýsingasíðu hér á vefnum.

Stjórn Kennarasambands Íslands kallar eftir samfélagslegu samtali um framtíð skólastarfs. KÍ hefur gefið út upplýsingarit þar sem fjallað er um skólakerfið í heild, frá leikskóla til grunn- og framhaldsskóla og tónlistarskóla. Þar er jafnframt að finna ítarlegar tillögur KÍ að stefnumótun í menntamálum.

Tillögurnar taka meðal annars til lykilþátta á borð við læsi, námskrár og námsgögn, öfluga kennarastétt, inngildingu og jöfnuð, fjölbreyttra námsleiðia hópastærða og mönnunar, mats á skólastarfi og fjármögnunar sem tekur mið af raunverulegum verkefnum skólanna.

Blásum byr í seglin

Stjórn Kennarasambandsins efndi til blaðamannafundar í Réttarholtsskóla fyrr í dag þar sem tillögur að stefnumótun menntamála til framtíðar voru kynntar. Formaður KÍ, Magnús Þór Jónsson, fór yfir sýn Kennarasambandsins til framtíðar og sagði að í stað skyndilausna þyrfti skýra langtímasýn sem byggði á þekkingu, reynslu fagfólks og víðtækri samfélagslegri sátt.

Fram kom að blaðamannafundurinn væri upphafið að vegferð KÍ þar sem óskað yrði eftir samtali við stjórnvöld, sveitarfélög, háskóla, fulltrúa atvinnulífs, nemendur, foreldra og aðra hagaðila.

„Markmiðið er að hlusta á ólíka reynslu og sjónarmið og ræða hvað samfélagið vill varðveita í skólastarfi, hverju þarf að breyta og hvaða sameiginlegu framtíðarsýn við viljum byggja á til að skapa langtímastefnu í menntamálum sem lifir kjörtímabil," sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ.  

Upplýsingasíða

Sett hefur verið upp sérstök upplýsingasíðan Blásum byr í seglin á vef Kennarasambandsins þar sem er að finna áhugaverðar og gagnlegar upplýsingar um skólakerfið og tillögur KÍ að stefnumótun í skólamálum til framtíðar. Fjallað er um skólastigin og skólagerðir; leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og tónlistarskóla.