Kjörnefnd FG auglýsir eftir framboðum

Fréttir|16. janúar 2026

Kallað er eftir framboðum til formanns og stjórnar hjá Félagi grunnskólakennara fyrir kjörtímabilið 2026 til 2030.

Kjörnefnd Félags grunnskólakennara (FG) auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til formanns og stjórnar félagsins fyrir kjörtímabilið 2026-2030. Kosið er í embættin í rafrænni allsherjaratkvæðagreiðslu félagsfólks. Fyrirkomulag atkvæðagreiðslu verður kynnt nánar síðar.

Formannskjör

Frestur til að bjóða sig fram til formanns er til klukkan 12:00 á hádegi, fimmtudaginn 5. febrúar.


Stjórnarkjör

Í stjórn Félags grunnskólakennara, eru kjörnir sex aðalfulltrúar og fimm varafulltrúar. Að lágmarki þarf ellefu framboð. Þeir sem flest atkvæði hljóta verða aðalmenn, og þeir sem næstir koma í atkvæðamagni verða varamenn í þeirri röð sem atkvæðafjöldi þeirra segir til um.

Frestur til að bjóða sig fram í stjórn er til klukkan 12:00 á hádegi, mánudaginn 23. febrúar.

Fyrirkomulag framboða

Þau sem hyggjast bjóða sig fram, einnig þau sem sækjast eftir endurkjöri, skulu senda tilkynningu um framboð á netfangið kjornefndfg@ki.is. Í póstinum skal koma fram nafn, kennitala, starfsheiti, vinnustaður og í hvaða embætti er boðið fram í – og einnig skal mynd af viðkomandi fylgja í viðhengi.