Kjörsókn hjá FG var níu prósent í hádeginu

Fréttir|21. maí 2026
FG Logo RGB An Leturs (1)

Félagar í FG velja sér nú fulltrúa til að sitja í samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd félagisns, á kjörtiamabilinu 2026 til 2030.

Félagsfólk í Félagi grunnskólakennara gengur nú til atkvæða um hverjir taka sæti í skólamálanefnd, samninganefnd og kjörnefnd félagsins, fyrir tímabilið 2026 til 2030. 

Kjörsókn var aðeins 9 prósent í háeginu í dag. 

Atkvæðagreiðslan hófst á þriðjudag og lýkur á hádegi á morgun, föstudag. 

Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. 

Við hvetjum félagsfólk FG til að kynna sér frambjóðendum og taka þátt í kosningunum.

Kynningar frambjóðenda er að finna á kosningasíðu FG

Kynningar frambjóðenda í textaskjali