Kjörsókn í stjórnarkjöri FG var 7,5% í hádeginu í dag

Fréttir|3. mars 2026

Félagsfólk FG velur sér nýja stjórn félagsins i allsherjaratkvæðagreiðslu.

Alls höfðu 7,5 prósent greitt atkvæði í stjórnarkjöri Félags grunnskólakennara klukkan 12 í dag. Atkvæðagreiðslan hófst á hádegi í gær og stendur til klukkan 12 á fimmtudag. 

Fjórtán eru í eru framboði til stjórnar. Hægt er að kynna sér áherslur og stefnumál frambjóðenda á kosningasíðu FG.

Félagsfólk í FG er hvatt til að taka þátt í kosningunni

Frambjóðendur til stjórnar í stafrófsröð

  • Anna Guðrún Jóhannesdóttir, varaformaður Félags grunnskólakennara
  • Álfhildur Leifsdóttir, kennari í Árskóla
  • Eva S. Káradóttir, kennari í Grunnskólanum Þorlákshöfn
  • Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir, kennari í Egilsstaðaskóla
  • Geirlaug Ottósdóttir, kennari í Álftamýrarskóla
  • Guðbjörg Íris Atladóttir, kennari í Rimaskóla
  • Hildur Sigfúsdóttir, kennari í Heiðarskóla
  • Hreiðar Oddsson, kennari í Álfhólsskóla
  • Íris Árný Magnúsdóttir, kennari í Vallaskóla
  • Kolbrún Guðmundsdóttir, kennari í Sunnulækjarskóla
  • Kristín Björnsdóttir, kennari í Ingunnarskóla
  • Margrét Össurardóttir, kennari í Hvaleyrarskóla
  • Sigurður Freyr (Bibbi) Sigurðarson, kennari í Brekkuskóla
  • Örlygur Þór Helgason, kennari í Helgafellsskóla