Kosningar hjá FG fara hægt af stað
Fréttir|20. maí 2026

Aðeins 4 prósent félagsfólks í FG höfðu greitt atkvæði í kosningum til trúnaðarstarfa í hádeginu í dag.
Kosningar standa yfir hjá Félagi grunnskólakennara, þar sem kosið er í samninganefnd, skólamálanefnd og kjörnefnd félagsins.
Atkvæðagreiðslan hófst á hádegi í gær og fer heldur hægt af stað, en aðeins fjögur prósent félaga höfðu greitt atkvæði á hádegi í dag.
Tíminn er þó nægur því atkvæðagreiðslan mun standa til hádegis á föstudag.
Félagsfólk í FG er hvatt til að taka þátt í kjörinu.
Allt sem þú þarft að vita
Frambjóðendur kynna sig og sínar áherslur. Fyrirkomulag atkvæðagreiðslu. Þetta er allt að finna á kosningasíðu FG.