Kosningar í stjórnir FL og FSL hefjast á morgun

Fréttir|5. mars 2014

Rafrænar kosningar í stjórnir Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla hefjast á morgun og standa til 10. mars.

Sjö bjóða sig fram í hvora stjórn en samkvæmt lögum beggja félaga skal stjórn kjörin í allsherjaratkvæðagreiðslu. Kynningu á frambjóðendum FL er að finna hér og kynningu á frambjóðendum FSL er að finna hér. Félagsmenn eru hvattir til að nýta sér atkvæðisréttinn.

Haraldur Freyr Gíslason er sjálfkjörinn formaður FL fyrir næsta kjörtímabil, frá 2014 til 2017 og Ingibjörg Kristleifsdóttir er sjálfkjörin í embætti formanns FSL fyrir næsta kjörtímabil. Í önnur trúnaðarstörf verður kosið á aðalfundum félaganna 25. apríl næstkomandi.