Kosningar til trúnaðarstarfa í FG eru hafnar

Kosið er til samninganefndar, skólamálanefnda og kjörnefndar í Félagi grunnskólakennara. Kosningu lýkur á hádegi á föstudag.
Félagsfólk í Félagi grunnskólakennara gengur nú til atkvæða um hverjir taka sæti í skólamálanefnd, samninganefnd og kjörnefnd félagsins, fyrir tímabilið 2026 til 2030.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.
- Atkvæðagreiðsla hefst klukkan tólf þriðjudaginn 19. maí
- Atkvæðagreiðslu lýkur klukkan tólf föstudaginn 22. maí
Við hvetjum félagsfólk FG til að kynna sér frambjóðendum og taka þátt í kosningunum.
Kynningar frambjóðenda er að finna á kosningasíðu FG
Kynningar frambjóðenda í textaskjali
Nöfn þeirra sem bjóða sig fram
Um atkvæðagreiðsluna
Kjörnefnd FG hefur ákveðið að atkvæðagreiðslan fari fram með rafrænum hætti. Atkvæðagreiðslan hefst þriðjudaginn 19. maí kl. 12:00 og lýkur föstudaginn 22. maí kl. 12:00.
Atkvæðisrétt hafa allir félagsmenn Félags grunnskólakennara samkvæmt félagatali KÍ.
Atkvæðagreiðslan er leynileg og leggur kjörnefnd áherslu á að félagsmenn virði það í hvívetna.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Rafrænum skilríkjum.
Þegar komið er inn á Mínar síður sést kosningin.
- Smelltu á Kosning í trúnaðarstörf FG 2026 og þá birtist atkvæðaseðillinn.
- Merktu við þá frambjóðendur sem þú vilt kjósa, samkvæmt leiðbeiningum á atkvæðaseðli.
- Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt er móttekið.
Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við.
Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.