Kröfugöngur og baráttufundir 1. maí

Félagsfólk KÍ er hvatt til að taka þátt í viðburðum í tengslum við 1. maí.
Styrkur okkar er velferð allra!
Þannig hljóðar yfirskrift baráttudags verkalýðsins, fyrsta maí, þetta árið. Efnt verður til kröfugangna, útifundar og ýmiss konar viðburða.
Hátíðardagskrá í Reykjavík
13:00 Safnast saman á Skólavörðuholti
13:30 Gangan hefst
- Farið verður niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Austurstræti að Ingólfstorgi. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur spila í göngunni.
14:00 Útfundur á Ingólfstorgi
- Fundarstjóri: Felix Bergsson
- Ávarp: Halla Gunnarsdóttir, formaður VR
- Tónlist: Dr. Spacetime
- Samsöngur í lokin

Félagsfólk KÍ er velkomið í Borgartúnið. Boðið verður upp á kaffi, lúðrasveitartónlist og góðan félagsskap. Opið hús milli þrjú og fimm.
Kennarasambandið leikur stórt hlutverk á Akureyri
Formaður Kennarasambandsins, Magnús Þór Jónsson, flytur hátíðarræðu á útifund á Akureyri. Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, verður kynnir og ávarp stéttarfélaganna flytur Erla Rán Kjartansdóttir, formaður BKNE. Þá sjá nemendur í MA og VMA um skemmtiatriði.
Dagskráin á Akureyri
- 13:45 Göngufólk safnast saman við Alþýðuhúsið
- 14:00 Lagt af stað við undirleik Lúðrasveitar Akureyrar
Hátíðardagskrá á Ráðhústorgi að lokinni kröfugöngu
- Fundarstjóri er Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
- Ávarp 1. maí nefndar stéttarfélaganna – Erla Rán Kjartansdóttir, formaður Bandalags kennara á Norðurlandi eystra
- Hátíðarræða – Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
- Leikfélag Menntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr söngleiknum Ljóska í gegn
- Leikfélag Verkmenntaskólans á Akureyri sýnir atriði úr leikritinu Ronja ræningjadóttir
Grillaðar pylsur og skátatívolí að dagskrá lokinni.
Kröfuganga og baráttufundur á Akranesi
Kennarasambandið tekur þátt í 1. maí viðburði á Akranesi eins og fyrri ár.