Kynningarfundir um kjarasamning boðaðir
Fréttir|7. apríl 2014
Kynningarfundir nýjan kjarasamning KÍ-framhaldsskóla og ríkisins verða haldnir næstu þrjá daga. Sökum þess hve tími er knappur gefst því miður ekki tími til að funda í öllum skólum og því eru kennarar hvattir til að nýta sér fundina. Þá er vakin er athygli á að kynningarfundur í Flensborg á miðvikudag verður sendur út á netinu.
Fundirnir verða sem hér segir:
Þriðjudagur 8. apríl, kl. 16:30
- Í VMA fyrir skóla á Norðurlandi. Haldinn í stofu M-01.
- Í Verzlunarskóla Íslands. Haldinn í Bláa salnum. Þessi fundur er einkum ætlaður FÁ, MR, KVSK, MH, MS, VÍ.
Miðvikudagur 9. apríl, kl. 16:30
- Í Flensborgarskóla. Fundurinn verður sendur út á netinu á http://netsamfelag.is/. Hægt verður að senda fyrirspurnir beint inn á fundinn en nánari upplýsingar um fyrirkomulag þess verða kynntar við upphaf fundar. Þessi fundur er einkum ætlaður FMOS, BHS, FB, Fjölmennt, MK, Flensborg, IH, FG og FS.
Fimmtudagur 9. apríl, kl. 16:30
- Á Suðurlandi – haldinn í Fjölbrautaskólanum Selfossi. Þessi fundur er einkum ætlaður kennurum í FSu og ML.
- Á Vesturlandi- haldinn Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þessi fundur er einkum ætlaður kennurum í FVA, MB og FSN.