Lagabreytingar ræddar á þingi KÍ
Fréttir|3. apríl 2014
Þriðji dagur þings Kennarasambands Íslands er hafinn. Dagskráin hófst með erindi Hafdísar Ingvarsdóttur, prófessors á menntavísindasviði HÍ, um fagmennsku kennara.
Að loknu erindi Hafdísar tekur við framsaga um lagabreytingar. Í kjölfarið hefst umræða um lagabreytingarnar og afgreiðsla þeirra. Eftir hádegi skila aðrar nefndir af sér tillögum, þær verða ræddar og afgreiddar.
Um 240 fulltrúar sitja þingið að þessu sinni og hafa þingstörf gengið vel. Þinginu lýkur á morgun.