Lagasetning stjórnvalda fordæmd

Fréttir|3. apríl 2014

Lagasetning stjórnvalda á löglega boðaða verkstöðvun undirmanna á Herjólfi er harðlega gagnrýnd í ályktun sem samþykkt var á þingi KÍ rétt í þessu. Ályktunin er svohljóðandi:

„Sjötta þing Kennarasambands Íslands lýsir yfir fullum stuðningi við undirmenn á Herjólfi í yfirstandandi kjarabaráttu þeirra. Ennfremur er lagasetning stjórnvalda fordæmd. Slík lagasetning á löglega boðaða verkstöðvun er óásættanleg og kemur í veg fyrir að raunveruleg lausn fáist með frjálsum samningum hagsmunaaðila.

Þing Kennarasambands Íslands harmar inngrip stjórnvalda enda eru þau andstæð stjórnarskrárvörðum samningsrétti. Sá samningaréttur er mikilvægasta tæki launafólks til að ná fram bættum kjörum“.