Launabilið hefur aukist frá 2002
Samanburður á meðallaunum kennara, náms- og starfsráðgjafa og stjórnenda í ríkisreknum framhaldsskólum við meðallaun félagsmanna hjá BHM sem starfa hjá ríkinu sýnir að launabilið hefur aukist til muna frá árinu 2002. Þetta kemur fram í úttekt Odds S. Jakobssonar, hagfræðings KÍ, í Rauða eplinu, fréttabréfi Félags framhaldsskólakennara, sem kom út í vikunni.
Oddur ber saman meðallaun fyrrgreindra hópa árin 2002, 2007 og 2012. Fram kemur að árið 2012 var launamunur 16% miðað við BHM-ríki og rúmlega 72% miðað við sérfræðinga á almennum vinnumarkaði. Hann segir það umhugsunarvert að framangreind launaþróun átti sér stað þrátt fyrir ákvæði kjarasamninga hjá KÍ-ríki um að launahækkanir væru síst lakari en sambærileg ákvæði í kjarasamningum samanburðarhópanna.