Leikskólarnir Sumarhús og Hlaðhamrar

Fréttir|12. maí 2026
Sumarhus (1)
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Það var fjölmenni sem mætti á viðburð Faghóps um skapandi leikskólastarf í nýja leikskólann Sumarhús í Helgafellslandi í Mosfellsbæ.  Leikskólinn er í miklum halla í landinu rétt steinsnar frá Helgafellsskóla sem er þar rétt fyrir ofan. Hverfið er mjög fallegt og fjölbreyttar byggingar, sambland af blokkum, raðhúsum og einbýlishúsum. Hverfið er greinilega enn í byggingu, Í Sumarhúsum tóku stjórnendur vel á móti okkur, Berglind og Valdís og sögðu okkur frá upphafsmánuðum leikskólans. Leikskólinn er stór og hefur nú opnað á efri hæð hússins, en á neðri hæðinni er núna tímabundið leikskólinn Hlaðhamrar og sagði Sveinbjörg leikskólastjóri okkur frá sögu hans.

Það var fjölmenni sem mætti á viðburð Faghóps um skapandi leikskólastarf í nýja leikskólann Sumarhús í Helgafellslandi í Mosfellsbæ.  Leikskólinn er í miklum halla í landinu rétt steinsnar frá Helgafellsskóla sem er þar rétt fyrir ofan. Hverfið er mjög fallegt og fjölbreyttar byggingar, sambland af blokkum, raðhúsum og einbýlishúsum. Hverfið er greinilega enn í byggingu, 

Í Sumarhúsum tóku stjórnendur vel á móti okkur, Berglind og Valdís og sögðu okkur frá upphafsmánuðum leikskólans. Leikskólinn er stór og hefur nú opnað á efri hæð hússins, en á neðri hæðinni er núna tímabundið leikskólinn Hlaðhamrar og sagði Sveinbjörg leikskólastjóri okkur frá sögu hans. 

Í Sumarhúsum hefur gengið vel að ráða kennara og annað háskólamenntað starfsfólk og eru stjórnendur bjartsýnir að áfram gangi vel.

Sambúð þessara tveggja leikskóla hefur gengið mjög vel. Leikskólarnir hafa ekki sömu áherslur, Sumarhús er á heilsubraut og verður í framtíðinni Heilsuskóli og mun starfa eftir heilsustefnu þeirri sem Unnur Stefánsdóttir heitin stofnaði á sínum tíma. 
Leikskólinn Hlaðhamrar starf­ar í anda Regg­io stefn­unn­ar og hefur gert í áratugi. Til þess að nálg­ast þessa hug­mynda­fræði er leik­skól­inn Hlað­hamr­ar vel bú­inn efni­viði og að­stöðu í Sumarhúsum. Mik­ið er not­að­ur skapandi efni­við­ur til mynd­list­ar og sköp­un­ar.

Það var sérlega áhugavert að koma í svona glæsilegan leikskóla. Við tókum fullt af ljósmyndum, en þær segja meira en nokkur orð. 

Takk kærlega fyrir okkur stjórnendur í Sumarhúsum.