Leikskólinn Marbakki 40 ára

Fréttir|12. maí 2026
Marbakki (1)
Faghópur um skapandi leikskólastarf

Í tilefni af 40 ára afmælis leikskólans Marbakka var opið hús í leikskólanum fyrir foreldra og aðstandendur barnanna og síðdegis var leikskólafólki boðið til umræðufundar um starfsaðferðir Reggio Emilia.Alda Agnes Sveinsdóttir leikskólastjóri bauð gesti velkomna og sagði lítillega sögu Marbakka. Strax á upphafsárum Marbakka starfaði kröftugur leikskólakennarahópur í skólanum sem hafði kynnt sér starfsaðferðir Reggio Emilia sem eiga uppruna sinn á Ítalíu. Kennarahópurinn varð einhuga um að tileinka sér þessar starfsaðferðir og lagði metnað í þá vinnu sem þurfti til að festa þær í sessi. Marbakki varð fyrsti leikskólinn á landinu til að starfa í anda Reggio Emilia og gerir enn. Skólastarfið hefur þróast í takt við tíðarandann hverju sinni.

Í tilefni af 40 ára afmælis leikskólans Marbakka var opið hús í leikskólanum fyrir foreldra og aðstandendur barnanna og síðdegis var leikskólafólki boðið til umræðufundar um starfsaðferðir Reggio Emilia.

Alda Agnes Sveinsdóttir leikskólastjóri bauð gesti velkomna og sagði lítillega sögu Marbakka. Strax á upphafsárum Marbakka starfaði kröftugur leikskólakennarahópur í skólanum sem hafði kynnt sér starfsaðferðir Reggio Emilia sem eiga uppruna sinn á Ítalíu. Kennarahópurinn varð einhuga um að tileinka sér þessar starfsaðferðir og lagði metnað í þá vinnu sem þurfti til að festa þær í sessi. Marbakki varð fyrsti leikskólinn á landinu til að starfa í anda Reggio Emilia og gerir enn. Skólastarfið hefur þróast í takt við tíðarandann hverju sinni.

Alda Agnes skipti þátttakendum í þrjá hópa þar sem rætt var m.a. um;


 Raddir barna – hvar liggja mörkin?
 Hvernig er lýðræði iðkað í leikskólastarfi?
 Kveikjur og aðgengi að leikefni – hlutverk hins fullorðna

Að loknum umræðum, sem voru mjög fróðlegar , var boðið upp á ljúffenga mexíkóska grænmetissúpu að hætti Ritu, meistaramatráðs Marbakka.

Hér má sjá myndir sem við tókum í afmælinu.