Lokað vegna þings
Fréttir|1. apríl 2014
Þing Kennarasambands Íslands hefst klukkan eitt í dag. Þess vegna verður skrifstofu KÍ lokað klukkan tólf. Opnað verður aftur í fyrramálið klukkan níu.
Þingið hefst á tónlistarflutningi klukkan eitt en klukkan hálf tvö mun Þórður Á. Hjaltested, formaður Kennarasambandsins setja þingið formlega. Um 250 félagsmenn í Kennarasambandinu sitja þingið en það stendur fram á föstudag.