Lumar þú á jafnréttisverkefni?
Fréttir|29. janúar 2026

Jafnréttisnefnd KÍ vill endilega fá að sjá þitt jafnréttisverkefni. Verðlaun í boði.
Jafnréttisnefnd Kennarasambands Íslands boðar til samkeppni um jafnréttisverkefni sem hafa verið nýtt í kennslu. Leitað er verkefna af öllum skólastigum sem sem tilheyra jafnrétti, kynjafræði, kynfræðslu og/eða falla undir grunnþáttinn jafnrétti.
Verkefnið getur verið stórt eða smátt:
- þemaverkefni heilla skóla eða árganga,
- verkefni fyrir bekk eða hóp nemenda,
- kennsluhugmynd sem þú hefur þróað og prófað.
Af hverju að taka þátt?
- Með því að senda inn hjálparðu til við að setja jafnrétti enn skýrar á dagskrá í íslensku skólastarfi.
- Vegleg verðlaun verða í boði fyrir vinningshafa.
Þátttaka er einföld
- Skráðu verkefnið til leiks hér: HÉR
- Sendu viðhengi (t.d. verkefnablöð, kennaraleiðbeiningar, lýsingu á kennslufræðilegri nálgun, úrlausnir nemenda o.fl.) í tölvupósti á jaki@ki.is – og merktu póstinn nafni verkefnisins. Athugaðu að gæta samræmis milli nafns verkefnis í skráningu og heita viðhengja, svo dómnefnd geti auðveldlega tengt allt saman.
Tímasetningar
- Skráningu lýkur 15. febrúar.
- Dómnefnd skipuð þremur sérfræðingum á sviði alhliða jafnréttis tekur til starfa þegar skilafrestur er liðinn.
Jafnréttisnefnd KÍ hvetur kennara og stjórnendur til að senda inn verkefni stór og smá!