Lýsa áhyggjum af framgöngu ráðherra
Níunda þing KÍ lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af framgöngu menntamálaráðherra og þeim viðhorfum hennar til skólasamfélagsins og þeirrar fagþekkingar sem menntakerfið byggir á.
„Menntamál krefjast metnaðar, stöðugleika og langtímasýnar í stefnumörkun. Undanfarið höfum við búið við alvarlegan skort á stöðugleika. Þrír mennta- og barnamálaráðherrar á rúmlega ári er fáheyrð staða og eitthvað sem þekkist ekki í samanburðarlöndum okkar."
Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktun sem Níunda þing Kennarasambands Íslands samþykkti fyrr í dag.
Þingheimur lýsir í ályktuninni áhyggjum af framgöngu mennta- og barnamálaráðherra og viðhorfum hennar í garð skólasamfélagsins og þeirrar fagþekkingar sem menntakerfið byggir á. Þá er vikið að skóla án aðgreiningar: „Þingið lýsir jafnframt yfir sérstökum áhyggjum af ummælum ráðherra um skóla án aðgreiningar. Ísland hefur, með lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, skuldbundið sig til að starfa á grundvelli réttinda fatlaðs fólks."
Þing KÍ telur mikilvægt að ræða stöðu skólakerfisins af hreinskini en slík umræða verður „að byggja á staðreyndum, vandvirkni og raunverulegu samtali við kennara og annað fagfólk sem ber uppi skólastarf á hverjum degi, segir í ályktun þingsins.
Um 250 félagar í Kennarasambandi Íslands sitja nú níunda þing sambandsins.
Ályktun 9. þings Kennarasambands Íslands
Níunda þing Kennarasambands Íslands lýsir yfir alvarlegum áhyggjum af framgöngu mennta- og barnamálaráðherra og þeim viðhorfum sem hann hefur sýnt í garð skólasamfélagsins og þeirrar fagþekkingar sem menntakerfið byggir á. Mikilvægt er að ræða stöðu skólakerfisins af hreinskilni en slík umræða verður að byggja á staðreyndum, vandvirkni og raunverulegu samtali við kennara og annað fagfólk sem ber uppi skólastarf á hverjum degi.
Menntamál krefjast metnaðar, stöðugleika og langtímasýnar í stefnumörkun. Undanfarið höfum við búið við alvarlegan skort á stöðugleika. Þrír mennta- og barnamálaráðherrar á rúmlega ári er fáheyrð staða og eitthvað sem þekkist ekki í samanburðarlöndum okkar. Til að innleiða breytingar eru kennarar og annað fagmenntað starfsfólk á öllum skólastigum og skólagerðum grundvallaratriði. Stefnumörkun á grundvelli popúlískra, pólitískra slagorða er hvergi líkleg til árangurs.
Þingið lýsir jafnframt yfir sérstökum áhyggjum af ummælum ráðherra um skóla án aðgreiningar. Ísland hefur, með lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, skuldbundið sig til að starfa á grundvelli réttinda fatlaðs fólks. Skóli án aðgreiningar þarf aukinn stuðning, eflingu úrræða og fleira fagfólk. Samfélagið þarf alls ekki umræðu sem ýtir undir aðgreiningu.
Áskoranir menntakerfisins eru fjölmargar. Meðal þeirra er breytt samfélagsgerð, skortur á úrræðum, kennurum og öðru fagmenntuðu starfsfólki, vönduðum námsgögnum og aðstöðu, til dæmis til verknáms. Stjórnvöld verða að leggja traustan grunn undir metnaðarfull pólitísk markmið eigi þau að ná fram að ganga. Tryggja þarf jafnt aðgengi nemenda að námi, óháð búsetu, svo allir fái metnaðarfull tækifæri til náms þar sem hæfni þeirra, áhuga og þörfum er mætt. Aðeins þannig er raunhæft að byggja upp farsælt samfélag til framtíðar.
Níunda þing Kennarasambands Íslands kallar eftir breyttum vinnubrögðum, meiri vandvirkni og nýjum tóni í stefnumörkun stjórnvalda og samskiptum við skólasamfélagið og lýsir sig reiðubúið, hér eftir sem hingað til, til faglegs samráðs og samvinnu við mennta- og barnamálaráðherra.
Samþykkt á 9. þingi Kennarasambands Íslands,
Hilton Nordica, 16. apríl 2026