Lýsa áhyggjum af vanda leikskóla í Reykjavík

Fréttir|6. febrúar 2026

Stjórn FSL krefst tafarlausra aðgerða í leikskólum borgarinnar. Glíman við langvarandi undirmönnum dregur úr gæðum leikskólastarfs.

Stjórn Félags stjórnenda leikskóla (FSL) hefur sent frá sér ályktun þar sem þess er krafist að Reykjavíkurborg bregðist þegar í stað við þeim vanda sem er uppi í leikskólum borginnar. Stjórnin tekur þar með undir þær miklu áhyggjur sem leikskólastjórar hafa sett fram og snúa að mikilli undirmönnum í leikskólum borgarinnar. 

Ályktun stjórnar FSL

Stjórn Félags stjórnenda leikskóla (FSL) tekur undir þær alvarlegu áhyggjur sem leikskólastjórar í Reykjavík hafa sett fram vegna langvarandi vanda í rekstri leikskóla borgarinnar.

FSL hefur allt frá innleiðingu styttrar vinnuviku bent á þau skipulagslegu vandkvæði sem skapast þegar ekki er samræmi milli vinnutíma starfsfólks og dvalarstunda barna.

Afleiðingarnar hafa reynst stjórnendum þungar í skauti enda hefur víða verið næstum ógerlegt með öllu að tryggja fullnægjandi mönnum í leikskólum borgarinnar. Glíman við verulega og langvarandi undirmönnun dregur úr gæðum leikskólastarfs og ítrekað hefur þurft að skerða þjónustu með tilheyrandi álagi á stjórnendur, kennara, starfsfólk, foreldra og börn.

Þrátt fyrir áskoranir hafa borgaryfirvöld ekki brugðist við með viðeigandi aðgerðum. Við það verður ekki unað.

Stjórn FSL krefst þess að Reykjavíkurborg leysi þennan vanda tafarlaust svo standa megi vörð um öryggi og velferð barna og starfsfólks í leikskólum.

Stjórn Félags stjórnenda leikskóla

 

Ályktun stjórnar FSL