Margt hægt að læra af skólastarfinu fyrir vestan

Fréttir|22. nóvember 2026
Fjölmennur og góður fundur með sveitarstjórnar- og skólafólki í Bolungarvík

Fulltrúar Kennarasambands Íslands funduðu með sveitarstjórnar- og skólafólki á Vestfjörðum í vikunni. Fundirnir voru vel sóttir og skiluðu góðum umræðum.

Fulltrúar KÍ heimsóttu Ísafjörð og Bolungarvík í vikunni í kjölfar boðs þeirra um að fá fund og ræða um sýn KÍ í skólamálum, Blásum byr í seglin. Fundað var með sveitarstjórnar- og skólafólki í Bolungarvík og Ísafirði. Þá var fundað sérstaklega með skólastjórn og félagsfólki í Menntaskólanum á Ísafirði.

Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, var ánægður með heimsóknina vestur: „Eins og í fyrri fundum okkar í verkefninu um að blása byr í seglin voru fundir með Ísafirði, Bolungarvík og MÍ afskaplega góður vettvangur umræðu um skólamál, þar var farið á dýptina og þá sérstaklega þegar kom að því að fræðast um skólamálin í þeirra héraði. Ég held að hægt sé að fullyrða að margt væri hægt að læra af skólastarfinu sem okkur var kynnt enda ríkir metnaður fyrir skólunum sem hjartslætti samfélaganna fyrir vestan og áhersla á að ná árangri í þeirra starfi.“

Frekari fundir fulltrúa KÍ með ólíkum hagsmunaaðilum eru fyrirhugaðir á næstu vikum og mánuðum.

Svipmyndir að vestan

Vel var tekið á móti fulltrúum KÍ á bæjarskrifstofunni á Ísafirði

Tillögur KÍ um stefnumótun í menntamálum

Við hvetjum félagsfólk til að kynna sér nýútkomin bækling þar sem er að finna hugmyndir Kennarasambandsins að stefnumótun í skólamálum í öllum helstu málaflokkum. Sama efni er auk þess að finna vefsíðunni Mótum framtíðina saman. ­­