Menntabúðir í samvinnu við Mixtúru og Menntavísindasvið

Faghópur um skapandi leikskólastarf heldur 20.. apríl 2026, kl. 14-16 árlegar menntabúðir í samvinnu við Mixtúru og Menntavísindasvið Háskóla Íslands og fleiri góða samstarfsaðila. Menntabúðirnar fara fram í opnu rými á Menntavísindasviði HÍ (Sögutorg á 1. hæð og Námsgagnaver á 2. hæð). Menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Samtal er í fyrirrúmi og öll geta boðið upp á kynningu – þó það sé ekki skilyrði til þátttöku.
Faghópur um skapandi leikskólastarf heldur 20. apríl 2026, kl. 14-16 árlegar menntabúðir í samvinnu við Mixtúru og Menntavísindasvið Háskóla Íslands og fleiri góða samstarfsaðila. Menntabúðirnar fara fram í opnu rými á Menntavísindasviði HÍ (Sögutorg á 1. hæð og Námsgagnaver á 2. hæð). Hér má sjá dagskrá menntabúðanna í ár.
Menntabúðir er samkoma þar sem fólk kemur saman til að miðla af eigin reynslu og þekkingu og afla sér fróðleiks frá öðrum þátttakendum. Samtal er í fyrirrúmi og öll geta boðið upp á kynningu – þó það sé ekki skilyrði til þátttöku.
Í ár er sérstök áhersla á læsi, tækni og skapandi starf.
Við óskum því eftir ábendingum um framsækið starf sem gæti átt vel heima á menntabúðunum. Leitað er eftir óformlegum kynningum á verkefnum úr starfi, verkfærum eða námsefni sem nýtist börnum og ungmennum - meðal annars:
- Eitthvað sem þú getur kennt okkur og nýtist í skóla- og frístundastarfi.
- Eitthvað sem tengist læsi í víðu samhengi.
- Kennslulausn eða verkfæri sem þú notar í starfi með börnum og ungmennum.
- Verkefni eða lausnir sem þú ert að þróa.
- Hefðbundið eða árlegt verkefni sem þér finnst sniðugt.
- Annað sem þér finnst gagnlegt eða áhugavert.
Auk menntabúða verður hægt að skoða nýtt húsnæði Menntavísindasviðs HÍ í Sögu, tímabundna aðstöðu Mixtúru á 3. hæð og kynna sér hugmyndir og teikningar að öflugri framtíðarsmiðju á 1. hæð.
