Menntun kennara – stefna og framtíðarsýn
Fréttir|24. september 2026

Skólamálaþing KÍ verður haldið 5. október. Yfirskrift þess verður Menntun kennara – stefna og framtíðarsýn.
Kennarasamband Íslands efnir til árlegs skólamálaþings mánudaginn 5. október. Yfirskrift þingsins að þessi sinni verður Menntun kennara – stefna og framtíðarsýn. Hugmyndin er að horfa fram á veginn og skoða framtíðarsýn þeirra sem koma að menntun kennara.
Erindi flytja
- Ingimar Ólafsson Waage, deildarstjóri Listkennsludeildar LHÍ
- Sigríður Margrét Sigurðardóttir, deildarforseti Kennaradeildar HA
- Freyja Hreinsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ
- Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ
Þingið verður haldið í húsnæði KÍ, Borgartúni 30, og hefst klukkan 16.15.