Mikilvægt að ná eyrum þingmanna

Fundaherferð Kennarasambandsins, Blásum byr í seglin, er í fullum gangi. Forystusveit KÍ átti fundi í gær með þingflokki Miðflokksins og þingflokki Samfylkingar.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, sagði báða fundi hafa verið upplýsandi og skapast hefðu góðar umræður.
Meðal atriða sem voru rædd á fundinum með Miðflokknum voru lestrarkennsla, hlutverk foreldra, skóli án aðgreiningar, mælikvarðar á námsárangur, ólíkar aðstæður sveitarfélaga og staða framhaldsskóla á landsbyggðinni.
Fyrir hönd Miðflokksins sátu fundinn þingmennirnir Ingibjörg Davíðsdóttir, Karl Gauti Hjaltason, Nanna Margrét Gunnarsdóttir, Sigríður Andersen, Snorri Másson, Trausti Örn Þórðarson og Þorgrímur Sigmundsson.
„Menntamál hafa að mínu mati fengið alltof lítið vægi á Alþingi Íslendinga og því er ótrúlega mikilvægt að ná eyrum þess lykilfólks í samfélaginu sem fulltrúar á Alþingi vissulega eru og ræða sýn okkar um að blása byr í seglin og móta framtíðina saman. Við áttum góðar umræður á báðum fundum sem klárlega verður hægt að byggja á í framtíðinni," sagði Magnús Þór að loknum fundunum tveimur.

Skipan skólastiga til framtíðar
Fulltrúar KÍ og þingflokks Samfylkingarinnar ræddu meðal annars áhrif niðurskurðar á námsframboð framhaldsskóla, mikilvægi þess að efla námsgagnagerð, ólík sjónarmið um styttingu leikskóladagsins, stöðu fámennra skóla og samstarf sveitarfélaga um skólahald.
Undir lok fundar voru reifuð atriði sem þingflokkurinn taldi vert að ræða frekar, svo sem kennaranám, starfsþróun kennara, hlutverk MMS og einkaaðila í námsgagnagerð, samræmd próf og fjölgun íslenskutíma. Einnig verði fjallað um hvort sveitarfélög ráði við verkefni sín í málefnum fatlaðs fólks og hvernig megi haga skipan skólastiga til framtíðar. Þar voru 6+6+6 kerfi og fræðsluskylda til 18 ára nefnd sem dæmi.
„Menntamál hafa að mínu mati fengið alltof lítið vægi á Alþingi Íslendinga og því er ótrúlega mikilvægt að ná eyrum þess lykilfólks í samfélaginu sem fulltrúar á Alþingi vissulega eru ..“
Fyrir hönd Samfylkingar sátu fundinn þingmennirnir Arna Ír Gunnarsdóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Árni Rúnar Þorvaldsson, Dagbjört Hákonardóttir, Eydís Ásbjörnsdóttir, Dagur B. Eggertsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, formaður þingflokks, Ragna Sigurðardóttir og Sverrir Bergmann Magnússon.
Fulltrúar KÍ á báðum fundum voru Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ, Mjöll Matthíasdóttir, formaður FG, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, Haraldur Freyr Gíslason, formaður FL, Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL, Arnbjörg Stefánsdóttir, formaður SÍ, og Oddur S. Jakobsson, hagfræðingur KÍ.
Samtalið hefur verið tekið víða
Það sem af er fundaherferð KÍ hafa verið haldnir níu fundir með sveitarfélögum; á Austurlandi, Norðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur verið haldinn fundur með þingflokki Viðreisnar og borgarstjórnarflokki Samfylkingar.
Fundað verður á Vestfjörðum í dag; á Ísafirði og í Bolungarvík. Fleiri fundir eru áformaðir á næstu vikum og verður greint frá efni þeirra þegar þar að kemur.
Markmiðið með Blásum byr í seglin er að efna til víðtæks samtals um allt samfélagið um hvernig skólamálum framtíðar verði best háttað.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, Jónína Hauksdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Oddur S. Jakobsson, Dagbjört Hákonardóttir, Arna Ír Gunnarsdóttir, Mjöll Matthíasdóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Haraldur Freyr Gíslason og Árni Rúnar Þorvaldsson.
Guðmundur Ari Sigurjónsson, Jónína Hauksdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Oddur S. Jakobsson, Dagbjört Hákonardóttir, Arna Ír Gunnarsdóttir, Mjöll Matthíasdóttir, Arna Lára Jónsdóttir, Haraldur Freyr Gíslason og Árni Rúnar Þorvaldsson.