Mjöll Matthíasdóttir verður áfram formaður FG
Fréttir|5. febrúar 2026

Núverandi formaður FG var ein í kjöri til formennsku í félaginu á næsta kjörtímabili.
Mjöll Matthíasdóttir verður formaður Félags grunnskólakennara á kjörtímabilinu 2026 til 2030. Þetta varð ljóst klukkan tólf í dag þegar frestur til formannsframboðs rann út. Mjöll var ein í kjöri og er því sjálfkjörin.
Mjöll hefur gegnt formennsku í Félagi grunnskólakennara síðan árið 2022.