Námskeið fyrir starfsfólk leikskóla

Fréttir|20. janúar 2014

Endurmenntun Háskóla Íslands vekur athygli á nokkrum námskeiðum í flokknum uppeldi og kennsla sem haldin verða á næstunni. Hljóðfærasmíði fyrir leikskólakennara er efni námskeiðs þar sem Hjörtur Bergþór Hjartarson, tréblásturs- og gítarkennari, og Pamela de Sensi flautukennari annast kennsluna.

Berglind Brynjólfsdóttir og Sigríður Snorradóttir, sálfræðingar á BUGL, annast námskeið undir yfirskriftinni: Kvíði barna og unglinga - fagnámskeið.

Dr. Anna-Lind Pétursdóttir, sálfræðingur og dósent við Menntavísindasvið HÍ, er kennari á tveimur námskeiðum; annars vegar Leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun og efla félagsfærni ungra barna og hins vegar Einstaklingsmiðuð úrræði til að draga úr erfiðri hegðun ungra barna.

Skráning á námskeiðin stendur yfir, nánar má kynna sér málið hér.