Nemendur sýna samstöðu í verki

Fréttir|6. febrúar 2014

Fjölmennt var á útifundi sem framhaldsskólanemar efndu til á Austurvelli í dag til láta í ljós samstöðu með baráttu framhaldsskólakennara.
Útifundurinn var boðaður af Sambandi íslenskra framhaldsskólanema og nemendafélögum 26 framhaldsskóla. Fundarmenn kröfðust þess að kjör framhaldsskólakennara yrðu bætt hið snarasta. Ekki væri verið að mótmæla verkfallinu sjálfur heldur þeim aðstæðum sem geta orðið til þess að kennarar eigi ekki annan kost en að fara í verkfall.

Í fundarboði Sambands íslenskra framhaldsskólakennara segir skýrt að berjast þurfi fyrir launaleiðréttingu kennara.

 „Við þurfum að berjast fyrir launaleiðréttingu kennara, ekki launahækkun. Launahækkun er hugtak sem á ekki við þessar aðstæður þar sem kennarastarfið er gríðarlega vanmetið miðað við þá miklu ábyrgð sem það felur í sér. Okkur á ekki að finnast í lagi að vægi menntunar okkar sé metið svo lágt. Við erum framtíðin og við eigum betra skilið, kennararnir okkar eiga betra skilið,“ er meðal þess sem sagði í fundarboði framhaldsskólanema.