Niðurstöður í stjórnarkjöri FG liggja fyrir

Kosningum til stjórnar Félags grunnskólakennara lauk á hádegi í dag.
Úrslit í atkvæðagreiðslu í stjórnarkjöri Félags grunnskólakennara liggja fyrir. Rafræn atkvæðagreiðsla fór fram dagana 2. til 5. mars. Atkvæðagreiðslunni lauk á slaginu 12 í dag. Fjórtán félagar í FG buðu sig fram til stjórnar.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar hljóðar svo
- Á kjörskrá voru 5.657
- Atkvæði greiddu 1.443 eða 25,52%
- Auðir seðlar voru 31
Eftirtalin hafa verið kjörin til setu í stjórn FG á kjörtímabilinu 2026-2030
Nafn
Fjöldi atkvæða
Sæti
Anna Guðrún Jóhannesdóttir
1.050
1. sæti
Álfhildur Leifsdóttir
876
2. sæti
Örlygur Þór Helgason
854
3. sæti
Sigurður Freyr Bibbi Sigurðarson
702
4. sæti
Kolbrún Guðmundsdóttir
635
5. sæti
Geirlaug Ottósdóttir
547
6. sæti
Kristín Björnsdóttir
535
1. varamaður
Fjóla Margrét Hrafnkelsdóttir
529
2. varamaður
Íris Árný Magnúsdóttir
526
3. varamaður
Hildur Sigfúsdóttir
514
4. varamaður
Hreiðar Oddsson
497
5. varamaður
Kosningar til annarra trúnaðarstarfa
Kjörnefnd FG mun á næstunni auglýsa eftir framboðum til saminganefndar, skólamálanefndar og kjörnefndar FG.
Ráðgert er að kosið verði í þessi embætti í maí næstkomandi. Nánar kynnt síðar.