Niðurstöður í stjórnarkjöri FSL liggja fyrir
Fréttir|11. febrúar 2026

Um 56 prósent félaga í FSL tóku þátt í kosningu til stjórnar FSL.
Niðurstaða í stjórnarkjöri Félags stjórnenda leikskóla liggur fyrir.
Alls voru ellefu í kjöri og var kosið um fjögur sæti í aðalstjórn og þrjú í varastjórn.
Eftirtalin hlutu kosningu
Nafn
Atkvæði
Elín Friðriksdóttir
167
1. sæti
Halldóra Guðmundsdóttir
150
2. sæti
Jónína Einarsdóttir
133
3. sæti
Anna Björk Marteinsdóttir
111
4. sæti
Marthen Elvar Veigarsson Olsen
96
1. varamaður
Jóna Rut Jónsdóttir
95
2. varamaður
Lísa Lotta Björnsdóttir
93
3. varamaður
- Á kjörskrá voru 476
- Atkvæði greiddu 266 eða 55,88%
- Auðir seðlar voru 4
Atkvæðagreiðslan fór fram dagana 9. til 11. febrúar – henni lauk á hádegi í dag.
Ný stjórn tekur við á aðalfundi FSL sem fer fram í ágúst.